Menntamál - 01.03.1944, Síða 34
80
MENNTAMÁL
in yrði það torveld, og raiklu skiptir að vanda vel til byrjunarinnar.
Það yrði að byrja þar, sem þöriin er mest, en það er í stærstu kaup-
stöðunum. Þar verður losið mest eftir styrjöldina og hættast við iðju-
leysi lijá unglingum, sem getur orðið stórfelld þjóðfélagsmeinsemd,
ef ekkert er við því gert."
Alþýðublaðið birtir grein Stefáns f heilu lagi (4. febr.) og jafn-
framt ummæli Tímans um hana. Síðan segir í blaðinu: „Þess er að
vænta, að þær tillögur, sem hún (þ. e. grein Stefáns) liefur inni að
halda, verði teknar til alvarlegrar íhugunar."
TJm manninn
Ríkisútgáfa námsbóka hefur gefið út bækling með þessu nafni.
Efni hans er kaflinn um manninn í Agripi af náttúrufræði eftir
Bjarna Sæmundsson.
Biblíusögur
2. hefti eru nýkomnar út lijá Ríkisútgáfunni. „Nokkrir prestar
og kennarar tóku bók þessa saman og sniðu hana að nokkru eftir
biblíusögum Eyvinds Berggravs, biskups í Oslo,“ segir á titilblaði. Bók-
in er 80 bls. og er um „I.íf og starf Jesú," og er þó í rauninni hvorki
upphaf né endir á. Ritstjóri Menntamála veit ekki, livernig höfund-
ar hafa hugsað sér niðurröðun verksins, og vill því ekkert frekara
um biblíusögurnar segja að svo stöddu, en ýmislegt mun þó vera vel
um þessa bók og miklu virðist hún vænlegri til náms í barnaskólum
en þær biblíusögur, sem notazt hefur verið við undanfarið. — Ann-
ars skal tækifærið notað til þess að vekja athygli kennara á þvi, að
Menntamálum væri mjög kærkomið að fá frá þeim athugasemdir
um námsbækurnar, þessa og aðrar, eftir því sem þeim þætti ástæða
til, og þyrltu þær athugasemdir ekki allar að vera mikilvægar, því að
oft er það lítið, sem lagar.
Utanáskrift Menntamála:
Til afgreiðslunnar: Pósthólf 616, Reykjavík.
Til ritstjórnarinnar: Tjarnarbraut 11, Hafnarfirði.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA.
Utgáfmtjórn: Ingimar Jóhannesson, Arngrímur Kristjánsson,
Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri.
Prentsmidjan ODDl h.f.