Menntamál - 01.04.1945, Blaðsíða 21

Menntamál - 01.04.1945, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL 99 hug sinn og krafta, svo að segja óskipt, enda hefur honum hlotnazt að launum ást og trúnaðartraust barnanna, hvar sem leiðir hans og þeirra hafa legið saman að nokkru ráði. Ég kynntist Jóni Sigurðssyni um það leyti, sem hann fluttist hingað til Reykjavíkur. Lengst af síðan hafa leiðir okkar að einhverju leyti legið saman vegna starfs í þágu sameiginlegra áhugamála. Þegar ég nú lít yfir farinn veg, vil ég segja, að tryggari og öruggari samstarfsmann hef ég ekki átt, jafnframt því sem bæði hann og kona hans Katrín hafa orðið mér hinir kærustu vinir. Gott er að vinna og vera með slíku fólki. Megi hamingjan fylgja þeim hjónum og láta íslenzka þjóð njóta þeirra lengi. Aðalbjörg Sigurðardóttir. Bækur sendar Menntamálum More Verse Worth Remembering, selected by Stanley Maxwell, M. A„ LL. B„ 245 + X bls„ verð: 3 sh. 6 d. (í bandi). Þetta er safn enskra úrvalskvæða, ekki ætlað skól- um fyrst og fremst, þótt vitanlega megi nota það þar, einkum í framhaldsskólum, heldur miklu fremur öllum ljóðelskum mönnum. Rúmlega 180 kvæði eru í bókinni eftir 87 höfunda. Er höfundunum raðað eftir aldri, en aftast í bókinni eru stutt æviágrip þeirra í stafrófsröð. Elztur nafngreindra höfunda er Chaucer (d. 1400), en yngstur Edmund Blanden (f. 1896). Fjöldi heimsfrægra skálda er í bókinni, svo sem Shakespeare, Milton, Words- worth, Byron, Shelley, Longfellow, Poe, Tennyson, Hardy

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.