Menntamál - 01.04.1945, Blaðsíða 24
102
MENNTAMÁL
norskum börnum. Hafa nú 80 þúsund krónur sænskar
verið yfirfærðar í þessu skyni og Rauði krossinn sænski
og Noregshjálpin sænska tekið að sér að senda 15 þúsund
matarpakka til Noregs fyrir þessa upphæð. I hverjum
pakka eru 5 kg af matföngum, vísindalega samsettum,
svo að næringargildi þeirra verði sem mest. Hverjum
pakka fylgir miði með kveðju frá íslenzkum skólabörnum
til norskra barna.
Framkvæmdanefndin mun halda áfram að vinna að
þéssu máli, og er þess að vænta, að nú þurfi ekki að verða
langur dráttur á, að þessi hjálparviðleitni geti komið að
tilætluðum notum. — Fræðslumálaskrifstofan veitir enn
viðtöku gjöfum til.Barnahjálparinnar.
Menntamál munu síðar flytja nánari fréttir um málið.
(Samkv. viðtali við formann framkvæmdarnefndarinnar, Ingimar
Jóhannesson).
Sýning Handíðaskólans
Handíða- og myndlistaskóli Islands í Reykjavík hefur
nú starfað í 5 ár. Aðalhvatamaðurinn að stofnun hans var
Lúðvig Guðmundsson, og hefur hann verið skólastjóri hans
alla tíð. Fastir kennarar skólans eru þeir Kurt Zier og
Gunnar Klængsson, en auk þess starfa ýmsir stundakenn-
arar við skólann. Skólinn starfar í tveim deildum: mynd-
listadeild og smíðadeild. Auk þess eru þar starfandi marg-
ar kvölddeildir, þar sem lagt er stund á teiknun, skraut-
málun, bókband, útskurð, svifflugusmíði, leðurvinnu alls
konar o. fl. Piltar úr Kennaraskólanum fá einnig kennslu
í bókbandi og smíðum í Handíðaskólanum. En kennara-