Menntamál - 01.04.1945, Blaðsíða 33

Menntamál - 01.04.1945, Blaðsíða 33
MENNTAMÁL 111 greinargerðum þeim, er þeim fylgja, þótt ekki verði frekar um það rætt liér að þessu sinni. 17 íþróttakennarar störfuðu í vetur <á vegum Iþróttasambands Íslands og voru 12 þeirra jafnframt starfsmenn Ungmennasambands íslands. Sumir kenn- aranna kenndu jafnframt í héraðskólum eða barnaskólum og fengu laun fyrir það frá fræðslumálaráðuneytinu. Kennararnir voru þessir: Arnfinnur Ingimundarson (skíðakennari) í Strandasýslu. Axel Andrésson hefur haldið námskeið (einkum í knattspyrnu og handknattleik) í Reykjavík, Akranesi, Reykjaskóla, Hvanneyri, Hól- um, Reykhohi, Núpi, Flateyri og Sauðárkróki. Bjarni Bachmann í Árnes- og Rangárvallasýslum. Björn Magnússon á Seyðisfirði. Gunnar Ólafsson á Búðum í Fáskrúðsfirði. Guttormur Sigurbjörnsson á Austurlandi og í vor á Isafirði. Halldór Jóliannesson í Svarfaðardal. Haraldur Sigurðsson i Eyjafjarðarsýslu og Suður-Þingeyjarsýslu. Hermann Guðmundsson á Drangsnesi i Strandasýslu. Jón Hjartar á Bíldudal og nú á Akranesi. Karl Guðmundsson í Keflavík, Norður-Þingeyjarsýslu, Mývatnssveit og Skagafirði. Iíjartan Bergmann (glímukennari) í Reykjavík, Akranesi, Hvann- eyri og Austfjörðum. Kristján Benediktsson í Garði, Dalasýslu og Vestur-ísafjarðarsýslu. Óskar Ágústsson (skíðakennari) á Austfjörðum. Páll Guðmundsson (skíðakennari) á Patreksfirði. Sigríður Guðjónsdóttir á Eyrarbakka og Stokkseyri. Stefán Þorleifsson í Neskaupstað. Skólasýningar. Það er siðvenja víða um land, að í lok skólatímans er lialdin sýning á ýmsu Jrví, er unnið hcfur verið á vegum skólans um veturinn. Eink- um er það liandavinna, sem sýnd er, bæði stúlkna og pilta, en jafn- framt teikningar og vinnubækur. Það er ýmist, að á sýningunum sé einungis sýnt úrval úr Jjví, sem unnið hefur verið í skólanum, eða sýnirigunni sé hagað Jrannig, að hún gefi sem réttasta mynd af vinnu- brögðum skólans yfirleitt og þeim árangri, sem náðst hefur. Nú er Jrað hvort tveggja, að Menntamálum berast fáar fregnir af þessum sýning- um, enda eru Jrær um margt svo líkar liver annarri, að ekki væri unnt að segja mikið frá hverri einni án endurtekninga. Þó vildu Mennta-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.