Menntamál - 01.11.1945, Side 24
198
MENNTAMÁL
Fréttir og félagsmál
Kennarasamband Austurlands
Iiólt aðalfund sinn á Reyðarfirði 22. sept. s.l. Formaður sambands-
ins, Karl Finnbogason, setti fundinn og minntist Sigurðar Thorlaciusar
skólastjóra. Risu fundarmenn úr sætum til virðingar hinum látna
fólaga og forvígismanni.
A fundinum voru gerðar eftirfarandi samþykktir:
1. Aðalfundur Kennarasambands Austurlands haldinn á Reyðarfirði
laugardaginn 22. sept. 1945 lýsir ánægju sinni yfir frumvarpi milli-
þinganefndar í skólamálum, en telur þó breytingar á því nauð-
synlegar í einstöktim atriðum:
a) Fundurinn lítur svo á, að keppa beri að því, að allir barna-
skólar landsins hafi jafnan starfstíma, og telur engin rök eða sann-
girni mæla með þvf, að skólar í hinum smærri kauptiinum, sem
oftast eiga verri aðstöðu, starfi allt að tveim mánuðum skemur
en skólar í kauptúnum og kaupstöðum, sem hafa yfir þúsund íbúa.
b) Fundurinn telur ekki lengur við það hlítandi, sem gilt liefur
að undanförnu, að jafn mörg börn komi á hvern kennara í öllum
skólum landsins, án tillits til aðstæðna. Lítur fundurinn svo á,
að í smærri skólunum, þar sem fleiri aldursflokkar og einstakl-
ingar á misjöfnu getustigi jturfa óhjákvæmilega að starfa í sömu
deild, beri að ætla mun færri börn á hvern kennara.
c) Ennfremur vill fundurinn benda á, að ef kennurum við stærri
skólana er ætlaður sérstakur tími til þess að ljúka við skýrslur og
ganga frá ýmsu viðvíkjandi skólastarfinu, þá virðist sjálfsagt að
hið sama gildi um smærri skólana.
2. Fundurinn skorar á fræðslumálastjórn að hafa strangara eftirlit
en verið hefur með því, að skólanefndir og sveitastjórnir skjóti
sér ekki undan því að uppfylla þær kröfur um skólahúsnæði og
kennslutæki, sem lög og fræðslumálastjórn mælir fyrir um. Ef við-
komandi skólahéruð geta ekki af f járhagslegum ástæðum uppfyllt
nefnd ákvæði, svo sem ætlazt er til samkvæmt lögum og uppeldis-
legum kröfum, þá telur fundurinn sjálfsagt, að ríkið sjálft taki
framkvæmdir allar og ákvarðanir í si'nar hcndur.
3. Fundurinn beinir þeirri ósk til fræðslumálastjórnarinnar, að náms-
stjórunum verði fjölgað í sex.