Menntamál - 01.12.1949, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL
137
leiði líf hans, fæ ég ekki við því spornað, að þessi vísa
Henriks Ibsens kemur æ fram á varir mér:
At leve er — krig med trolde
i hjertets og hjernens hvælv.
At digte, — det er at holde
dommedag over sig selv.
Á því dómþingi, sem hann háði yfir stríðandi öflum í
sjálfum sér, voru mál sótt og varin af síleitandi hugsun,
en dæmd eftir lögmáli sannleiksástar og manngöfgi. Dóm-
arinn, hin innsta rödd, kvað upp úrskurð að fyllstu kröf-
um þess lagastafs. Á. H.
OLAV KVALHEIM skólastjóri:
Tómstundastörf í norskum skólum.
Greinarjiöfundur er skólastjóri við barnaskólann ;i Rusclökka í
Ósló. Erindi þetta flutti hann á norræna skólaniótinu í Stokkhólmi
sumarið 1918. Þótti undirrituðuni það eitt hinna allra mcrkustu er-
inda, scm þar voru flutt m. a. vegna þess mikla vilja, sem ]>að greinir
frá, til þess að takast á liendur ný viðfangsefni uppeldisins eða a. m. k.
viðfangsefni, sem hefur verið allt of lítið sinnt, og vegna hinna mörgu
ábendinga um nýjar leiðir til að bæta úr næsta aðkallandi ]>örf. Við
ræðum um þessar mundir mjög um vernd barna og unglinga. Sú
vernd verður bezt í té látin með ]>ví ;tð veila uppvaxandi kynslóð
holl viðfangsefni og viðhlítandi skilyrði til að fást við þau, og á þetta
erindi ríkulegar leiðbeiningar fram að bjóða í því efni. Ritstj.
Það gæti virzt illa til fundin afskiptasemi að sletta sér
fram í, hvað fólk gerir við tómstundir sínar, einkum ef
kennarar færu nú líka að láta þessi mál til sín taka. En á
vorum dögum hafa tómstundirnar orðið talsvert vanda-
mál, ekki sízt fyrir fjölmarga fullorðna. Sem betur fer,
eru þeir dagar liðnir, að tími hvers og eins skiptist ein-