Menntamál - 01.03.1951, Page 38

Menntamál - 01.03.1951, Page 38
30 MENNTAMÁL teikningar sínar í bækurnar, og ekki sakar að leyfa þeim það, síður en svo. Til að forðast misskilning skal það tekið fram, að slík notkun teikninga, sem hér er lýst, á ekkert skylt við „krítar- eðlisfræði“. í henni eru teikningar helztu athugunargögn- in, en hér eru þær aðallega til þess ætlaðar, að niðurstöður tilrauna verði teknar saman, og teikning fræðir oft hina yngri nemendur betur en mörg orð. Það mun ljóst, að starf kennara í eðlisfræði er svo mikið, að það verður að vinna af miklum áhuga um fræðigrein- ina. Kennarinn verður ekki aðeins að vera svo vel menntað- ur í henni, að hann hafi vald á efninu, og skipuleggja kennslustundir í tækan tíma fyrirfram, heldur verður hann einnig að fylgjast með þróun í fræðigrein sinni bæði um uppeldisáhrif kennslunnar og sjálfa fræðigreinina. Við þetta bætist sá mikilvægi þáttur í starfi hans, sem er í því fólginn, að hafa áhaldasafnið í röð og reglu, og þar til heyrir ekki aðeins að bæta skemmdir, sem á því verða, heldur einnig að halda safninu hreinu, en það er því mið- ur oft vanrækt. Áður er talað um starf kennarans í kennslustundum. Enn skal rætt um einn þátt þess, sem sé prófun kennar- ans, spurningar hans til nemenda. Því miður er ekki sjald- gæft að heyra byrjað á útskýringartilraun með athugasemd á þessa leið: Þegar ég geri það og það, gerist það og það. Samstundis og slík athugasemd er sett fram, er áhugi meiri hluta nemenda áreiðanlega farinn. Sú ofvæniskennd, sem tilrauninni fylgdi, er gufuð upp. Nemendur þurfa ekki að athuga sjálfir. Þeir þekkja orsök og afleiðingu, því að kenn- arinn er að öllum jafnaði sæmilega áreiðanlegur maður og engin ástæða til að efa, að einmitt það, sem hann segir fyrir, muni gerast. Frumskilyrði þess, að nemendur athugi sjálfir, er að engu gert. Kennarinn gerir ekki kröfur um hæfileika þeirra til að athuga og hugsa. Ekki fæst heldur mikill árangur af þeirri tilhögun, að þægilegt samtal fari

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.