Menntamál - 01.12.1952, Blaðsíða 22
132
MENNTAMÁL
LýSháskólinn í Rambouillet.
Menntamálum voru nýlega send ýmis gögn varðandi
franskan lýðháskóla og jafnframt mælzt til, að frá skól-
anum yrði sagt. Er tímaritinu ljúft að verða við þeim til-
mælum.
Lýðháskóla þessum var komið á fót að síðari heims-
styrjöld lokinni. Stofnandi hans, Marcel Paccou (Pakkú),
franskur menntamaður ungur að aldri, stundaði háskóla-
nám á styrjaldarárunum, en varð frá að hverfa um sinn.
Hann dvaldist árlangt við nám í Danmörku og lét heill-
ast af menningu Norðurlanda. Einkum tóku lýðháskól-
arnir hug hans fanginn.
Marcel Paccou átti landsetur í Rambouillet á Norður-
Frakklandi — um 50 km frá París. Þetta höfuðból sitt,
Cháteau du Vieux Moulin eða Kastala við Gömlu myllu, lét
hann skólanum í té og reisti þar samkomuskála og íþrótta-
hús til viðbótar, auk þess sem hann lét breyta upphaf-
legum húsakynnum, svo að þau hentuðu betur skólastarfi.
Að sumrinu er haldinn þarna fjöldi námsskeiða fyrir
æskulýðsleiðtoga. Að vetrinum fer hins vegar fram sam-
fellt skólastarf. Stefnt er að því að koma upp lýðháskóla
í frönskum anda, og hefur kennslumálastjórnin franska
hönd í bagga með skólahaldinu.
Paccou hefur boðið Norðurlandaþjóðum sérstaklega að
senda nemendur til skóla síns. Er það ætlun hans að auka
menningartengsl Frakklands og Norðurlanda. Til for-
stöðu hinni norrænu deild lýðháskólans hefur hann fengið
gagnmerkan skólamann sænskan, Nils Hjalmar Bosson,
fyrrum skólastjóra lýðháskólans í Tárna. Bosson er ýms-
um íslendingum að góðu kunnur, einkum þeim, sem nám.