Menntamál - 01.03.1953, Page 12
6
MENNTAMAL
SÍMON JÓH. ÁGÚSTSSON prófessor:
Nokkur orð um aðbúð og
geSvernd kennara.
(Útvarpserindi að stofni til.)
Á þessari öld hefur
skilningur mjög glæðzt á
því, hve mikilvægt það er,
að allur aðbúnaður manna
við störf sé sem beztur. En
í hugtakinu aðbúð felst
mikið og margt. Það er tal-
að um aðbúð manna við
störf í efnahagslegri, lík-
amlegri og sálrænni merk-
ingu. Raunar verka þættir
þessir hver á annan og eru
saman slungnir í reynd. Þar
sem ekki er hægt að gera
þessu yfirgripsmikla efni
skil í örstuttri grein, vildi
ég einungis vekja athygli
á einum þættinum í aðbúð
kennara, þeim þætti er ég taldi síðast, eða geðvernd þeirra
og geðheilsu.
Allir munu sammála um það, að staða barna- og ungl-
ingakennara er mikilvæg. Á þeim hvílir ekki aðeins fræðsla
barnanna að mjög miklu leyti, heldur hafa og engir, þegar
foreldrar eru undanskildir, eins djúp og víðtæk áhrif á
persónuþroska barnanna. Með framkomu sinni, fordæmi
og leiðbeiningum temur kennarinn börnunum ekki ein-
Slrnon Jóh. Agústsson.