Menntamál - 01.03.1955, Síða 9
MENNTAMÁL.
XXVIII. 1.
JANÚAR—MARZ.
1955.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
sextugur.
Menntamál hafa gætt
þess af lítt brigðulli kost-
gæfni að geta ekki fagurra
bókmennta. Þó hefur eitt
sinn verið vikið rösklega
frá þessari venju. Gerðist
það á fyrsta ári ritsins, 6.
tölublaði, marz 1925. Þá
sendi Guðmundur Hagalín
Menntamálum grein frá
Noregi. Greinin heitir Da-
víð frá Fagraskógi.
Þáv. ritstjóri Menntamála,
sem nú er forseti íslands,
segir svo í stuttum for-
mála með grein Guðmund-
ar: „Þó greinin snerti lít-
ið verksvið þessa blaðs, þá
eru þeir Guðmundur og Davíð vissulega þess maklegir,
að hún sé hér birt . ..“
Réttir þrír tugir ára eru liðnir, síðan þetta gerðist, og
vona ég, að ekki þyki ofrausn, þótt Menntamál sendi þjóð-
skáldi kveðju á slíkum fresti. Frestur þessi er þó miklu
lengri en talið verði í árum, því að hann skilur milli kyn-
slóða, hann seilist milli rústa eftir tvær heimstyrjaldir og
greinir milli framandi lífshátta og lífshorfa. Því er svo