Menntamál - 01.03.1955, Page 19
MENNTAMAL
11
Grímur Grímsson látinn.
Grímur Grímsson, skóla-
stjóri, andaðist að heimili
sínu í Ólafsfirði 21. nóv.
síðast liðinn.
Hann var fæddur 15.
jan. 1882 að Stóraholti í
Fljótum í Skagafirði.
Hann fluttist ungur með
foreldrum sínum að
Möðruvöllum í Héðinsfirði
og ólst þar upp til alda-
móta. Hann stundaði nám
í Möðruvallaskóla og
lauk prófi þaðan 1904.
Kennaraprófi lauk hann
úr Flensborgarskóla 1906
„ , „ , og stundaði nám við lýð-
háskólann í Voss í Noregi
1914.
Hann kvæntist Bjarnveigu Helgadóttur árið 1907.
Grímur Grímsson var skólastjóri við barnaskólann í
Ólafsfirði 1907 til 1935, eða 28 ár samfleytt. Hann var
kennari með ágætum, glaður í lund, hlýr í viðmóti, vin-
fastur, gáfaður og minnugur svo af bar.
Hans mun lengi verða minnzt af þeim, sem honum
kynntust.
Hér fer á eftir ávarp Sigursteins Magnússonar skóla-
stjóra við afhjúpun brjóstlíkans af Grími Grímssyni á
sextugs afmæli barnaskólans á Ólafsfirði 8. jan. 1955.