Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 23
MENNTAMÁL
15
INNTÖK USKIL YRÐI.
Hert hefur verið á inntökuskilyrðunum. Ekki hefur
þó verið talið fært að krefjast stúdentsprófs af öllum.
Minnir greinarhöfundur á samþykkt frá þingi alþjóðasam-
bands kennara (WCOTP) í Oslo í sumar, þar sem talið
var, að „upptökuskilyrði við háskóla og kennaraskóla
skyldu vera þau sömu eftir því sem tök væru á“. Danir
láta sér þó nægja gagnfræðapróf með hárri einkunn eða
inntökupróf við kennaraskólana. Lágmarksaldur við inn-
göngu í kennaraskóla hefur verið hækkaður um eitt ár.
Er hann nú 18 ár, nema stúdentar skulu vera 19 ára.
Kennaraskólarnir hafa undirbúningsdeildir, og hafa
þær starfað eitt kennsluár, en nú er gert ráð fyrir, að
þær verði í lengsta lagi 15 mánuðir. Tæpur þriðjungur
þeirra, er sóttu um inntöku í kennaraskólana á síðasta
ári, hafði engin tilskilin próf. Athyglisvert er, að inntöku-
skilyrði hefjast ekki með upptalningu á því, sem kennara-
efni á að kunna, heldur er bent á, að inntaka skuli fara
eftir áliti kennaraskólans á nemandanum og þroska hans
og hæfni til kennarastarfa, og skal matið grundað með
hæfnisprófi eða öðrum hætti. Þó er skylt að minnast
þess, að enn hafa ekki fundizt neinar óbrigðular aðferðir
til að meta hæfni kennaraefnis (sbr. Menntamál 1954,
bls. 12). Nú má vænta, að mat skólans sé ekki óbrigðult,
og er því lagt til, að hæfni nemanda sé endurskoðuð, áður
en þeir eru fluttir upp í þriðja bekk. Á þessum skólatíma
verður því að reyna á hæfni þeirra til að kenna eða fást
við börn með öðrum hætti.
NÁMSEFNI.
Áherzla er lögð á, að kennaraskólarnir séu uppeldis-
fræðilegir háskólar, með því að gera hagnýtt skólastarf
(kennsluæfingar, skipulagningu og stjórn o. s. frv.), upp-