Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 25
MENNTAMAL
17
skírteini kennara verða íramvegis í þremur hlutum. í
fyrsta lagi kemur þar fram munnlegur dómur um þekk-
ingu og kennarahæfileika, í öðru lagi árseinkunnir í
ákveðnum námsgreinum (standpunktskarakter) og í þriðja
lagi prófseinkunnir.
Próf verða engin í hagnýtu skólastarfi, uppeldisfræði,
dönskum bókmenntum, sögu og kristinfræðum. I þess stað
kemur álitsgerð um þekkingu og kennarahæfileika nem-
anda, þar sem sérstaklega er greint frá þátttöku hans í
kennsluæfingum og starfi hans í hverri þeirra greina, er
hér voru taldar.
Ekki eru heldur þreytt próf í handíðum, teikningu,
íþróttum, músik, skrift, handavinnu kvenna og matreiðslu.
í þessum greinum eru gefnar árseinkunnir.
Próf eru í dönsku ,reikningi, náttúrufræði, landafræði,
eðlisfræði, erlendum málum og stærðfræði.
Prófin eru felld niður til þess m. a. að gera starfið í
kennaraskólunum frjálsara. Hins vegar verður eitthvað
að koma í mót, og svo hefur verið í þeim löndum, þar sem
slík próf hafa verið felld niður. í Svíþjóð eru tíð próf á
skólatímanum, í Ameríku fá handhafar veitingavaldins
(de ansættende Myndigheder) trúnaðarskýrslur um kenn-
araefni. 1 Danmörku skal ábyrgð kennaraskólanna viður-
kennd með því að bægja óhæfum nemendum frá kennara-
námi í tæka tíð.
Með lögum þessum mun aukin ábyrgð og aukinn vandi
lagður á herðar kennara sem nemanda við kennaraskól-
ana í Danmörku, og Morville skólastjóri bendir á það, sem
margir aðrir merkir skólamenn gera nú með sterkum
orðum, að kennarar verði að gæta sín vandlega að týna
ekki mennsku sinni fyrir einfaldri dýrkun á kennslutækj-
um og aðferðum. „Ef menn eru ekki á verði, er hætta á
því, að aldir verði upp í kennarastétt óþjálir reglupostul-
ar, er brátt munu stirðna í ófrjóum venjum, þar eð þá
brestur frjóvgandi anda.“ Br. J.
2