Menntamál - 01.03.1955, Síða 31
MENNTAMÁL
23
BRODDl JÓHANNESSON:
Hófleg íhaldssemi eða nýjungagirni.
Með línum þessum er
iítil skýringamynd, kráku-
stígur frá A til B. Við
hugsum okkur, að flokkur
manna ætli að fara frá A
til B, og eru allir einhuga
um að komast þangað.
Ekki sést frá A til B, en
tíðast verða einhverjir til
að „marka stefnuna“. Eft-
ir nokkurn tíma áttar ein-
hver ferðamannanna sig á
því, að stefnt hefur verið
um of til hægri. Segir
hann samferðamönnum
sínum frá þessu, og enn
er „stefnan mörkuð“. Síð-
ar kemur í ljós, að nú var
stefnt um of til vinstri, og svo koll af kolli. Ferðamenn-
irnir þokast í áttina að marki, en þeir slaga mjög til
beggja handa.
Þekkingarleit manna hefur verið líkt við ferðalag af
þessu tæi. Nýjar leiðir hafa fundizt, greiðari en fyrri
götur, nýjar aðferðir einfaldari en þær, sem áður tíðkuð-
ust, nýjar tilgátur, sennilegri en þær, er fyrr voru til
leiðsagnar. Þessa hefur gætt mjög í kennslu, bæði að-
ferðum og fræðikenningum. Itroðsla og lexíunám var
að miklum hluta gagnslítið, sóandi á tíma og orku og
knúið fram með meiri ruddahætti en nútímamönnum er