Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 38
30
MENNTAMÁL
Svefn
Fjöldi stunda, frd þvi að numið var.
Gleymskulínurii tveggja manna. Lina annars cr heil, hin rofin. I
öðru afbrigði tilraunar sváí'u þeir nokkrar klukkustundir að námi
loknu, en í liinu unnu þeir jafnlangan tíma eftir námið. Gleymskan
verður minnst, e£ maður á kost á að sofna strax að námi loknu.
(Ur Hugur og hönd.)
mínútur milli kennslustunda, og þær svo langar, að gagn
sé að.
I þessu sambandi er einkar fróðlegt að athuga gleymsku
við starf og gleymsku í hvíld, einkum svefni. Margir munu
minnast þess, að sagt hafi verið við þá unga: „Farðu með
kvæðið, áður en þú sofnar, rifjaðu það, þegar þú vaknar,
og þá gleymir þú því aldrei.“ Þessi kennslufræðilega regla
er skráð í kerlingabækur, en hvað segja vísindin um hana?
Það má nokkuð ráða af eftirfarandi töflu:
Tími frá því numið var, unz efni var skilað I st. 2 st. 4 st. 8 st.
Munuð atriði, er menn höfðu unnið i millit. 46 31 22 !)
Munuð atriði, er menn höfðu sofið í miliit. 70 54 55 56