Menntamál - 01.03.1955, Síða 43
MENNTAMÁL
35
er það frábærlega vel skipulagt, og sýnir glöggt, hve allt
verklegt, hagnýtt nám er mikils metið meðal Breta. Hjá
drengjum ber mest á frábærum tré- og málmsmíðaverk-
stæðum, sem ekkert virðist til sparað, við nær alla skóla.
þar er mjög fullkominn vélakostur, og efni allt ágætt. Mundi
t. d. mörgum smíðakennaranum hér, þykja mikils um vert
að fá hvort tveggja eftir vild, þurran efnivið og valinn.
Rauðviður eða annað úrvals smíðaefni virtist alls staðar
notað eftir þörfum. Árangur er víða ágætur, og áreiðan-
lega myndu margir undrast alveg sérstaklega leikni ýmissa
nemenda í málmsmíði.
Aðbúnaður stúlknanna við verknámið er á sinn hátt
alveg sambærilegur við aðstöðu drengja. Handavinnu-
stofur þeirra eru ágætlega útbúnar, og eldhúsin yfirleitt
mjög góð.
Garðyrkja ýmiss konar er og stór liður í verklegu námi
þessa stigs í mörgum skólahverfum Bretlands. Er hún
að sjálfsögðu einkum kennd í sveitum, og tel ég hana til
fyrirmyndar eins og hina verklegu kennslu þessa stigs
yfirleitt. Búfjárrækt og alifuglarækt fer og í vöxt sem
kennslugrein í þessum skólum í sveitum. — Jarðyrkju-
stefnu brezku sveitaskólanna hef ég lýst nánar á öðrum
stað, svo að ég ræði hana ekki frekar hér.
í sambandi við hagnýta verklega kennslu fara svo
fram mjög athyglisverðar og þaulskipulagðar atvinnu-
leiðbeiningar. Sérstakir þar til kjörnir ágætismenn standa
fyrir þessum leiðbeiningum á hinum ýmsu stöðum. Heim-
sækja þeir skólana reglulega, ræða við nemendur ákveð-
inna bekkja, bæði einslega og í heild, sýna þeim kvik-
myndir varðandi ýmsar starfsgreinar, skipuleggja, ásamt
skólastjórum, heimsóknir á vinnustöðvar, miðla aðgengi-
legum fræðsluritum o. fl. o. fl. Þá hafa þeir fundi með
kennurum og foreldrum eftir þörfum, o. s. frv. Munu
þessar markvissu og einlægu leiðbeiningar hafa ómetan-
legt gildi fyrir marga. Loks má geta, að þegar ungling-