Menntamál - 01.03.1955, Page 46
38
MENNTAMÁL
meta íþróttastarfsemina. Ég er heldur ekki í minnsta
vafa um, að hún hefur líka mikið uppeldislegt gildi og
á sinn drjúga þátt í því að skapa þá uppeldislegu festu,
sem svo víða er þar áberandi, og ég hef fyrr vikið að.
Um skozka skóla verður ekki rætt sérstaklega hér,
enda frásögn þessi einnig miðuð við kynni af þeim: brezka
skóla. Hins vegar er fyrirkomulag þeirra í vissum atrið-
um töluvert ólíkt. Yfirleitt munu skozkir skólar ekki síðri
en enskir, og jafnvel í ýmsu fremri. Sumt af því bezta,
sem ég sá, var líka þar.
Á kennaramenntunina hef ég ekkert minnzt. E. t. v.
mundi suma fýsa að heyra fáein orð um hana að lokum. Á
þeirri menntun er töluverður munur í Skotlandi og Eng-
landi. I Skotlandi er kennaranámið þrjú ár, með líkri undir-
búningsmenntun og í Englandi. Hins vegar fá enskir
kennarar réttindi eftir tvö ár, og stúdentar eftir stuttan
aukatíma. — Fimmtán prósent enskra kennaranema eru
þrjú ár við nám, og þá þriðja árið til þess að sérhæfa sig
í einhverri grein eða greinum. Árið 1960 gera Englend-
ingar ráð fyrir að hafa komið á hjá sér þriggja ára kenn-
aranámi almennt. Munu ýmsir kennarar hér undrazt, hve
námstími enskra kennara er stuttur. Ástæðan er eingöngu
sú, að kennaraþörfin er svo mikil, að þeir hafa ekki enn
getað fullnægt henni með öðru móti en þessu. — Sextíu
prósent barnakennara í Englandi eru konur.
Ljúka þær allþungu inntökuprófi til þess að komast inn
í kennaraskóla. Nítíu prósent kennaraefna dvelja tvö til
þrjú ár í skóla, að loknu skyldunámi, áður en þeir ganga
undir það. Tíu prósent ljúka því á skemmri tíma.
Æfingakennsla kennaranna er mikil og fer nær öll fram
í öðrum skólum í nágrenninu. Aðeins örfáir brezkir kenn-
araskólar hafa sérstaka æfingaskóla. í Englandi eru nú
158 kennaraskólar.
Launamál brezkra kennara eru nú mjög umtöluð, og
þá einkum vegna hins mikla launalega misréttis milli karla