Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 51
MENNTAMÁL
43
og hið síðasta í síðustu kennslustund vetrarins. I fyrstu
kennslustund eftir jól báru nemendur saman þessi tvö
sýnishorn og ákváðu þá nokkrir að breyta til og skrifa
hér eftir formskrift. Þetta lét ég nemendur að öllu sjálf-
ráða um. Mjög greinileg framför hafði átt’ sér stað hjá
flestum nemendum, og ekki hvað sízt hjá þeim, sem léleg-
ustu rithöndina höfðu. Veldur þar að sjálfsögðu miklu um,
hve formskriftin er einföld. Þetta atriði finnst mér eitt af
aðalkostum formskriftarinnar. Allir eiga auðvelt með að
breyta um rithönd, en það tekur að sjálfsögðu nokkurn
tíma að fá sama skriftarhraða og áður. Hjá þeim, sem
ekki kusu formskriftina, varð ekki vart við neina breyt-
ingu á rithöndinni. Nemendum hætti ekki til að blanda
skriftaraðferðunum saman. Áhættan virðist því engin,
en ég var í byrjun uggandi um, að tilraun þessi hefði í
för með sér breytingu á rithönd þeirra, sem óskuðu ekki
að gera formskriftina að rithönd sinni.
Bókaútgáfa í Kaupmannahöfn (Grafisk Forlag) hefur
gefið út tvær bækur, sem fjalla um formskrift. Heita þær
Formskrift (lærerens hæfte) og Formskrift (Selvstud-
ium) og eru báðar eftir Alvhild Bjerkenes. Auðvelt er
hverjum manni að læra formskriftina til hlítar eftir bók-
um þessum. Bókinni Selvstudium fylgja 5 forskriftarhefti.
Þær kosta hvor um sig tæpar 20 danskar krónur, og hægt
er að kaupa þær eða láta útvega sér þær hjá öllum bóksöl-
um, sem skipta við Danmörku. T. d. útvegaði Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar mér forskriftarheftin, sem áður
er getið. Kostuðu þau 2,40 kr. heftið.
Það vakti athygli margra kennara, sem skoðuðu skóla-
sýninguna, sem haldin var í Osló í sambandi við 16. nor-
ræna kennaramótið s. 1. sumar, að flest verkefni frá
barnaskólum Oslóar voru skrifuð með formskrift, enda
mun hún nú kennd við svo að segja alla barnaskólana þar,
eftir því sem norskir kennarar hafa sagt mér. Sami áhugi
virðist einnig fyrir henni í Danmörku. Kennarasamtök-