Menntamál - 01.03.1955, Side 52
44
MENNTAMÁL
in beita sér fyrir námskeiðum fyrir kennara. Þess má og
geta, að formskriftin er nú kennd í mörgum bekkjum í
tilraunaskóla frú Nörvig að Emdrupborg.
Meðal verzlunarstéttarinnar er sömuleiðis mikill áhugi
fyrir formskriftinni. Veldur þar mestu um, hve skýr hún
er. Þess þekkjast nú dæmi í Kaupmannahöfn, að verzlunar-
fyrirtæki geri það að skilyrði, þegar nýr starfsmaður er
ráðinn, að hann kunni formskrift.
Ég nota formskriftina og skáskriftina jöfnum hönd-
um, en þó hef ég í vetur nær eingöngu notað formskriftina
sem töfluskrift. Tel ég kosti hennar á því sviði ótvíræða,
vegna þess hve einföld og skýr hún er.
í forskriftabókum formskriftarinnar eru ýmsar skrift-
aræfingar, sem notaðar eru sem skreyting á blaðsíðunni
og yngstu nemendur eru látnir lita í öllum regnbogans
litum. Er þetta gert til að gera skriftarnámið auðveldara
og skemmtilegra, en auðvitað má beita þessu, hvaða kerfi,
sem notað er.
Því miður hef ég ekki haft aðstöðu til að kenna byrj-
endum formskriftina, en gæti ímyndað mér, að auðvelt sé
að kenna þeim börnum hana, sem lært hafa að gera prent-
stafi í sambandi við lestrarnám sitt, vegna þess að mis-
munurinn á formskrift og prentstöfum er tiltölulega lítill.
Þetta greinarkorn er ekki skrifað til að ófrægja eða
mæla á móti neinni ákveðinni skiftaraðferð, heldur er
tilgangur minn aðeins sá að skýra frá þeirri reynslu, sem
ég hef fengið og kynna jafnframt þessa nýjung fyrir
starfssystkinum mínum. Sýnishornin, sem hér fylgja með,
eru valin af handahófi. Af þeim ætti að vera hægt að
mynda sér skoðun á blæ og útliti formskriftarinnar, og
einnig hinu, hvort um framför hafi verið að ræða hjá
þessum unglingum.
Formskriflardœmin eru frá 29. okt. 1953, hin dæmin eru frá 8. apríl
1954. Neðst er sýnishorn úr forskriítarbók Iljerkenes. Myndin er
smækkuð úr 23 í 16.