Menntamál - 01.03.1955, Síða 54
46
MENNTAMÁL
þess að hafa leitað sérstaklega eftir kunnáttu og leikni
nemenda, og bóndinn getur ekki sagt nákvæmlega um nyt
kúa sinna án mælingar. Þannig er um hvað eina.
Áhugi á félagskönnun fer nú mjög vaxandi, og helzt
hann í hendur við aukna viðleitni til að neyta vísindalegra
aðferða við að skipa samlífi manna. Ekki skulum við
vænta hér neinna kraftaverka fremur en af öðrum fræði-
legum aðferðum, en reyna að hafa gagn af því, sem gefst.
Áður en langt líður, munu Menntamál gera gleggri grein
fyrir þessum efnum, en hér fara á eftir nokkur sýnishorn
um niðurstöður af félagskönnun í bekk í framhaldsskóla.
Þar var leitað eftir tvennu, vinsældum nemenda og því,
hversu vel þeir þættu til foringja fallnir. Síðan er dregin
á blað afstaða nemendanna innbyrðis. Koma þar næsta
glöggt fram vinsældir og óvinsældir, samheldni, klíkur og
togstreita. Hver einstaklingur er auðkenndur með hring
á myndunum, en talan í hringnum er einkennistala hans.
Myndir af þessu tæi mætti ef til vill kalla tengslamyndir,
á erlendum málum eru þær kallaðar „sociogröm". Á eftir-
farandi myndum eru tveir bekkjunautar teknir sér, og
ákveðin tengsl þeirra við bekkjunauta athuguð. Þessir