Menntamál - 01.03.1955, Page 55
MENNTAMAL
47
nemendur eru nr. 17., sem flestir kjósa sér að félaga, og
nr. 15, sem flestir kjósa að hafa ekki að félaga.
Hver nemandi hefur kosið tvo til og tvo frá sem félaga.
Örvar sýna, hvern veg atkvæðum er beint. Ef strik eru
í stað örva, er kosning gagnkvæm. í bekk þessum voru 24
nemendur. Þriðjungur bekkjarins kýs nr. 17. að félaga.
En auk þess skiptir máli, að hann er annar í röðinni, þeg-
ar kjósa skal foringja, en nr. 12, 8, 20, og 6 fara næstir
á eftir honum sem foringjaefni og eru þar í 8., 4., 5. og
6. sæti. Þannig er hann ekki aðeins langvinsælasti nem-
andi bekkjarins, heldur eru með honum 5 af 6 helztu for-
ingjunum.
Aðstaða nr. 15 er öll önnur. Ekki færri en 10 af 23
bekkjasystkinum hans kjósa hann sízt að félaga. Einsætt
er, hversu erfitt hlutskipti þessa nemanda er í bekknum.
Nr. 17 er einn þeirra, sem kjósa hann frá. En nóg um það
að sinni, ljóst mun vera, að hæpið muni að skylda börn
til vistar í bekkjum við slíkar aðstæður, ef ekkert er að
gert. En fyrst er að vita, hvernig unnt er að kanna þessi
efni, og verður það væntanlega rakið betur í hausthefti
Menntamála. Br. J.