Menntamál - 01.03.1955, Qupperneq 59
MENNTAMÁL
51
stigs, gagnfræðastigs, barnaskólastigs) á Norðurlöndum,
nema íslendingar hafa ekki enn gerzt aðilar að starfi
þessu.
Athyglisvert er einnig, að Norðurlöndin, önnur en ís-
land, hafa opinberar rannsóknarstofnanir, sem verða
sjálfkjörnir aðilar að starfi þessu, í Danmörku er Dan-
marks pædagogiske forskningsinstitut, í Finnlandi In-
stitutionen för pedagogik och didaktik við háskólann í
Helsingfors, í Noregi var stofnað 1. okt. sérstakt rann-
sóknarráð (statligt försöksrád) og í Svíþjóð Skolöverstyr-
elsens försöksavdeling. Auk þess eru ýmsar rannsóknir
gerðar að frumkvæði einstaklinga og skólanefnda, en það
er að sjálfsögðu dreift, og hefur þegar komið í ljós, að
sums staðar háir skortur á fræðilegri þekkingu og fræði-
legum skilningi slíku starfi.
Leitað var samvinnu við Islendinga um þátttöku að
rannsóknarstarfi þessu, og munum við eflaust taka þátt
í því, þegar aðstæður leyfa, og verður það vonandi fyrr
en seinna.
Fundur var í Stokkhólmi 4. jan. s. 1. Komu þar fulltrú-
ar frá Danmörk, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð og ræddu
framtíðar verkefnin. í fyrsta lagi var ákveðið að afla
glöggra gagna um þau rannsóknarstörf, sem nú eru unnin
í þessum efnum á Norðurlöndum. Jafnframt voru rædd
nokkur þau efni, sem brýnust þörf var talin að rannsaka.
Menntamál munu skýra frá þessu starfi framvegis.
Ólafur Björnsson prófessor er formaður íslandsdeildar
Norrænu menningarnefndarinnar.
Br. J.