Menntamál - 01.03.1955, Page 62
54
MENNTAMAL
og hafa nokkur afskipti af þeim, haldiS því mjög eindregið
fram, að hið eina úrræði, sem að haldi kæmi í strjálbýlinu
og vert væri að vinna að og kosta nokkru til, væru heima-
vistarskólarnir, þ. e. að byggð séu hæfilega stór skóla-
heimili á tilteknum svæðum, þar sem börn gætu búið
tíma og tíma, meðan þau stunda nám, og þau þá gengið
þangað, sem næst búa.
Eins og fram er tekið hér að framan eru aðeins 6
heimavistarskólar á svæðinu. Á hinn bóginn hafa hin síð-
ari ár þrýst fram „gervi“-skólum af þessu tagi, (sbr.
hér að framan) og hefur það mjög bætt ástandið þar sem
það hefur komizt í framkvæmd. Bendir það og til þess,
hvert stefnir í strjálbýlinu, enda hygg ég, að menn sann-
færist smátt og smátt um það, að heimavistarskólarnir séu
eina úrræðið, sem framtíðin mun sætta sig við. Er nú
heimavistarskóli í smíðum í Svarfaðardal, og mun hann
sennilega geta hafið starf næsta skólaár. Þá eru og 3
hreppar í Eyjaf jarðarsýslu í undirbúningi með að reisa
saman slíkan skóla við Laugaland á Þelamörk, og verður
það til stórra bóta fyrir þær sveitir, þegar slíkt kemst i
framkvæmd. Þá hefur bæði Mývatnssveit og Reykdæla-
hreppur í Suður-Þingeyjarsýslu mikinn hug á að koma
upp slíkum skóla hjá sér, og raunar Bárðdælahreppur líka,
enda byggð þannig hagað í sumum þessum sveitum, eins
og víðar, að heimangönguskólar koma varla til greina.
1 Skagafirði eru 3 hreppar í viðræðum um úrlausn
sinna fræðslumála með sameiginlegum hætti, og er von-
andi, að þar rísi bráðlega myndarlegt skólahús, sem þess-
ir hreppar geta sameinazt um, og tel ég það muni verða
heppilegast sett nálægt Sleitubjarnarstöðum, en það er
á mörkum þessara þriggja hreppa: Viðvíkur-, Hofs- og
Hólahrepps. Þá ræðir hinn víðlendi Akrahreppur um
skólahús fyrir sig, enda er hann það mannmargur, að
hann gæti staðið einn að skóla. Svo er og um Seyluhrepp,
en aðstaðan við jarðhita Varmahlíðar er svo ágæt, að