Menntamál - 01.03.1955, Síða 63
MENNTAMÁL
55
þar ættu bæði Rípurhreppur og Staðarhreppur að fá að
vera með, svo að þar yrði sameiginlegt skólaheimili þess-
ara þriggja hreppa. Á ýmsum fleiri stöðum á þessu svæði
eru í undirbúningi skólahúsabyggingar, enda ekki van-
þörf all víða.
Tveir kaupstaðirnir af fimm eiga ný og ágæt skólahús
með fimleikasal. Það eru Sauðárkrókur og Ólafsf jörður. Á
Siglufirði er gamalt og sæmilegt skólahús, sem vantar þó
rúm fyrir handiðjuna, og nú einnig leikfimissal, því að
sá, sem notaður var þar, brann fyrir rúmu ári.
Þá er hið 24 ára gamla skólahús á Akureyri orðið allt-
of lítið, þótt nýlega væri við það aukið. Þar er nú í ráði að
byggja nýtt skólahús á Oddeyrinni, og er það nauðsyn-
leg og sjálfsögð framkvæmd.
Á Húsavík er gamalt skólahús og of þröngt að verða.
Mun rísa þar veglegt skólahús innan tíðar, og var byrjað
þar á vinnu við grunninn á s. 1. hausti.
I kauptúnunum á svæðinu eru víðast nokkuð gömul
skólahús og sums staðar fremur ófullkomin. Þó hafa hin
síðari ár verið reist góð hús t. d. á Þórshöfn, Hrísey, við
Hjalteyri (sem raunar er skólahús fyrir alla sveitina
líka), svo er nýbyggt ágætt skólahús á Hofsósi, og á Dal-
vík er byrjað á allmikilli byggingu við skólahúsið þar.
Þá hefur Öngulsstaðahreppur í Eyjafirði byggt gott skóla-
hús, sem börnum er ekið að og frá daglega í bíl.
Af sveitunum í Norður-Þingeyjarsýslu var Öxarfjörð-
ur fyrstur að reisa heimavistarskóla og þar næst Prest-
hólahreppur, en í Suður-Þingeyjarsýslu Hálshreppur. f
Eyjafjarðarsýslu var Árskógshreppur fyrsti og eini
hreppurinn, sem reisti sér heimavistarskóla, og hefur
hann starfað á annan áratug, og kemur þá Svarfaðar-
dalur næstur. f Skagafjarðarsýslu var Haganeshreppur
fyrstur, og svo hefur Lýtingsstaðahreppur reist sinn
ágæta heimavistarskóla, við Steinstaðalaug, sem starfað
hefur undanfarin ár. Þá eru sumar sveitir að koma upp