Menntamál - 01.03.1955, Side 65
MENNTAMÁL
57
Sambandsstjórnin hefur skrifað nefnd þeirri, er vinnur
að endurskoðun launalaganna. Höfuðtillögur stjórnarinn-
ar eru, að kennarar verði færðir úr 10. launaflokki í 8.
launaflokk, og er þá miðað við flokkaskipan núgildandi
launalaga og núverandi verðlag í landinu.
Þessi tilfærsla er meðal annars rökstudd með því, að
námstími til kennaraprófs hafi verið lengdur að mun, síð-
an núgildandi launalög gengu í gildi. Kennarar hafi því
nú lengri námsferil að baki en aðrir starfshópar í 10.
launaflokki og einnig sé kennsla erfiðari og ábyrðgarmeiri
en flest önnur störf.
2. Uppeldismálaþing og kennslutækjasýning.
í júní n. k. er fyrirhugað að halda uppeldismálaþing.
Stjórnin hefur ákveðið að koma á fót sýningu á kennslu-
tækjum og öðrum skólanauðsynjum í sambandi við þingið.
Stjórnin samþykkti að æskja þess, að fræðslumálastjóri
tilnefndi mann í sýningarnefnd, sömuleiðis var þess farið
á leit við fræðslufulltrúa Reykjavíkur, að hann tæki sæti í
sýningarnefndinni, og einnig var Landssambandi fram-
haldsskólakennara boðin þátttaka og að tilnefna mann í
nefndina. Allir þessir aðilar urðu við tilmælum stjórnar
S. f. B., og er nefndin þannig skipuð:
Ingimar Jóhannesson, fulltrúi,
Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi,
Ilelgi Þorláksson frá L. S. F. K. og
Árni Þórðarson og
Pálmi Jósefsson frá S. í. B.,
en varamaður Frímann Jónasson.
Nefndin hefur skipt með sér verkum, er Pálmi Jósefs-
son formaður og Jónas B. Jónsson ritari.
Nefndin væntir þess, að kennarar sendi henni ábend-
ingar um kennslutæki og aðrar skólanauðsynjar, er þeir
telja athyglisverðar og æskilegt að kynna á sýningunni.