Menntamál - 01.03.1955, Page 67
MENNTAMÁL
59
og hér er talið af íslenzkum skólum. Af því að þetta er endurtekið
í riti íslenzkra kennara, er skylt að benda fyrst á, hversu fráleitt væri
að vænta þess af íslenzkum kennurum, að þeir séu einir ábyrgir fyrir
þeim kröfum, er felast í ofangreindum spurningum. Hitt er þó meira
alvöruefni, að breytingar á atvinnuháttum geta valdið því, að nauður
reki til að gera slíkar kröfur til skólanna. Það er m. a. tekið fram í
fyrrnefndri grein, að sums staðar í Bandaríkjunum vinni 52% mæðra
utan heimilis. Þessi eina staðreynd gefur ljósa bendingu um þá menn-
ingarlegu einangrun, er yfir börnum vofir í iðnþjóðfélagi.
Ef virðingin fyrir helgi mannssálarinnar, virðingin fyrir mann-
legum persónuleika, réttindum aljrýðumannsins, trúin á gildi ein-
staklingsins og virðing fyrir lögum og reglu er í háska án opinberra
skóla, geta þá skólarnir bægt þessum háska frá dyrum?
Hið starfræna uppeldi eitt án alls leikaraskapar og gerviláta gel-
ur ræktað og geymt Jrað þel, er áður talin verðmæti kvikna af. Ef
atvinnulíf tekur ])á stefnu, að slíks sé ekki kostur, þá verður enga
björgun að sækja í íslenzka skóla, enda þá orðið litlu að bjarga. En
bæði kennurum sjálfum og öðrum Jiegnum Jrjóðfélagsins er hollt að
gera sér ljóst, hvers vænta má með rökum og sanngirni af kennurum.
Br. J.
UM HVAÐ ER SKRIFAÐ í ERLEND RIT?
Síðasta heftið af Unge PœcLagoger, 15. árg. nr. 10, er Specialnummer
G og fjallar um „Tekniske Undervisningsmidler.“ Þetta er stórt
hefti, 56 bls., og eru þá auglýsingar meðtaldar, en J)ær eru margar og
allar um tæki, sem frá er sagt í greinum í heftinu. Heldur er elnið
einhæft, Jrað fjallar einvörðungu að kalla urn skuggamyndir, kvik-
myndir og segulbönd, en því rækilegri skil eru þessurn efnum gerð.
Er full Jrörf á leiðbeiningum um slík tæki, því að þau eru einskis
nýt, ef menn kunna ekki að fara með þau.
Dansk pccdagogisk tidskrift 9. h. 2. ár, flytur gagnmerka grein eftir
Johannes Novrup skólastjóra: A t vœre lœrer. Rekur hann lielztu
breytingar, sem orðið hafa á horfi við nemendum, kennsluaðferðum og
kennurum frá því á dögum Karls mikla. Novrup telur, að fyrr á
öldum hafi mönnum mjög hætt til að gleyma barnseðlinu í skólunum,
en gert liinn fullorðna kennara einráðan ítroðslujrrjót, nú fari menn
tíðum þveröfugt að, og gleymist Jrá allt annað en lieimur barns-
ins í skólunum. Varar hann með sterkum rökum við öfgunum, á
hvorn veginn sem þær eru.
Eva Nordland skrifar greinina Sympati med den umsympatiske,
og er kjarni liennar: „Aðgát skal liöfð í nærveru sálar.“