Menntamál - 01.04.1956, Side 107
MENNTAMÁL
101
manna um land allt, að þeir kaupi kennaratalið og tryggi með því
áframhaldandi útgáfu þess. Það er að sjálfsögðu og eingöngu undir
sölu þess komið, hvort hægt verður að halda áfram útgáfu þess
eða ekki.
Útgefandi kennaratalsins mun innan skamms senda ölluni kenn-
urum landsins og öðrum áliugamönnum sérstakt bréf og gefa þeim
kost á að eignast 1. hefti þess fyrir 100 kr., en það mun annars verða
selt á 130 kr. Það verður ekki sett i bókabúðir. Kennaratalið er að-
eins prentað í 1500 eintökum, og er því vissara að tryggja sér ein-
tak í tíma.
Ritið má panta hjá prentsmiðjunni Odda hf., Grettisgötu 16,
Reykjavík (sími 2602).
(Frétt frá KennaratalsnefncL.)
INGÓLFUR DAVÍÐSSON:
r
Undraheimur dýranna. Höfundur Maurice Burton, þýðendur
Broddi Jóhannesson og Guðm. Þorláksson. Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs 1955.
Lifnaðarhættir dýranna eru miklu furðulegri og „mannlegri" en
flesta grunar. Sum safna vistum til vetrarins að hætti góðra bænda,
sum eru byggingameistarar, ýmis eru flestum mönnum snjallari á veið-
um og ratvísari. Flest geta þau „talað saman“ á sinn liátt. Jafnvel
fiskarnir kallast á, þótt við heyrum það ekki. Það er hægt að hlusta
á sævarbúa með sérstökum hlustunartækjum. Óðalshvöt er algeng.
Dýrin helga sér bústað og lóð og verja óðalið. Heimur dýranna er
sannarlega girnilegur til fróðleiks. —
Mörgum þykir strembið að læra undirstöðuatriði dýrafræðinnar
í skóla. Veldur þar, eins og í grasafræðinni, miklu um, að hér á
landi eru lítil tök á því að fara með nemendurna út í hina lifandi
náttúru og kenna þar. Hentugt lesefni hefur og verið of fábreytt
utan kennslubókanna. Þessi bók bætir verulega úr skák sem skemmti-
leg og fróðleg lesbók. Hún opnar lesendum ný svið í hinu fjölbreytta
ríki dýranna og vekur til athygli og umhugsunar. Munu bæði kenn-
arar og nemendur geta haft hennar rnikil not. Bókin bendir réttilega
á það, að sjaldan þarf langt að leita skemmtilegra viðfangsefna. Þau
bíða venjulega við bæjardyrnar. —
Efni bókarinnar er fjölbreytt. Sem dæmi má nefna kaflana: For-
vitni dýra, skærir hlutir og aðdráttarafl þeirra, búmennska, breyting-