Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 34
20
MENNTAMÁL
í hverjum skóla skal vera fjölþætt bókasafn.
1 hinum stærri skólum skal því ætlað sérstakt húsnæði.
í litlum skólum skal því komið fyrir í kennslustofu. —
Bókasafninu ber að hafa til reiðu bækur, er henta þeim
aldursflokkum, sem skólann sækja. — Þar eiga að vera
góðar barna- og unglingabækur, sem bókmenntagildi hafa,
einnig fagbækur til eflingar bóklegu námi, ásamt tíma-
ritum og blöðum, sem nauðsynleg þykja. Myndabækur og
myndskreyttar ævintýrabækur fyrir yngstu nemendurna
eiga einnig þar heima.
Nemendur skulu hafa greiðan aðgang að fjölfræði-
bókum og öðrum þeim bókum, sem heimildagildi hafa
gagnvart því námi, sem fer fram í skólunum.
Safnið ber að nota í þágu kennslunnar og til þess að
fullnægja lestrarþörf einstaklinga. Bókasafnið á að ráða
yfir þeim bókakosti, að það fullnægi þeim kröfum, sem
til þess eru gerðar.
í þeim skólum, sem hafa sérstakt húsnæði fyrir bóka-
söfn, skal kenna börnunum frumatriði í notkun bóka-
safna. Einnig ber að leiðbeina nemendum, sem leita heim-
ilda varðandi bóklegar námsgreinir, hvort heldur um er
að ræða hópvinnu eða einstaklingsvinnu. í slíku húsnæði
og hér um ræðir fá nemendur hina ákjósanlegustu að-
stöðu til námsiðkana og geta auk þess kvatt bókavörðinn
sér til aðstoðar, þegar þörf krefur.
Bókasöfn barnaskólanna í Gautaborg voru stofnuð 1906,
með eitt hundrað króna árlegu tillagi til hvers skóla. —
Nú á hver skóli þar stórt safn, þeir eldri 10—11 þúsund
bindi, auk lesflokka varðandi ýmsar námsgreinir. Bóka-
fulltrúi hefur umsjón með bókasöfnunum, annast bóka-
kaup, sér um dreifingu þeirra á milli skólanna og velur
bækur í lesflokka, sem skólarnir fá að láni eftir þörfum.
Ég minnist þess, að hann sýndi mér flokk um Afríku, sem
hann var nýbúinn að taka saman. Hann velur einnig bæk-
ur fyrir 7—9 ára börn og myndar bekkjarbókasöfn með