Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 41
menntamál
27
Bekkjarbókasafna hef ég áður getið. Þau eru í tveim-
ur flokkum, fyrir eldri og yngri börn. Bækur fyrir eldri
börn, þ. e. 10 ára og eldri, eru yfirleitt fjölfræðibækur,
þar sem hægt er að fá upplýsingar um margvísleg efni í
sambandi við vinnubókargerð, ritgerðir eða einstakar
námsgreinir.
Bókasöfn kennara: Þar hafa kennarar viðkomandi skóla
frjálst val varðandi bókakaup, eins og ég hef áður tekið
fram. Til þeirra er veittur sérstakur styrkur.
Greining bókasafna.
Ég hef áður minnzt á barnabókasöfn, án þess að gera
grein fyrir hvers konar söfn það eru. En barnabókasöfn
eru deildir úr almenningsbókasöfnum. Þar fer fram útlán
á bókum til barna, sem hafa náð þeim aldri, að öðlast rétt
til samskipta við slík söfn. Einnig eru þar rúmgóðir lestr-
arsalir.
í sænskum bókasöfnum er útlánakerfið mjög einfalt,
og stefnt er að því að gera það enn einfaldara, — fólkið
afgreiðir sig að nokkru leyti sjálft.
Elokkunarreglur blasa við augum þess, sem inn kemur,
°g eru auk þess sérprentaðar í handhægu broti. Getur hver
sem er tekið þær sér í hönd og haft þær til leiðbeiningar,
Þegar hann velur sér bækur.
Nauðsynlegt þykir að kynna börnunum slík söfn og
kenna þeim að nota þau, áður en þau láta innrita sig þar.
í barnadeildum bókasafnanna er ýmislegt gert fyrir
börnin, sem ekki tilheyrir venjulegri starfsemi í slíkum
stofnunum, má þar nefna leiksýningar, kvikmyndasýn-
ingar, sögulestur og jafnvel útistarfsemi fer fram á veg-
um þeirra, en ekki mun það vera algengt.
Bókaval í söfnin. Ég hef áður greint frá, hvernig það
er framkvæmt. Geta má þess, að það er talið mjög mikil-
vsegt, að bækur, sem ætlaðar eru börnum, séu skrifaðar
uf heilbrigðu fólki og lýsi heilbrigðu lífi. Þær eiga að