Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 50
36
MENNTAMÁL
Tækniskólarnir geta einnig veitt þetta próf, er námi í
þeim lýkur um 16 ára aldur.
Þeir, sem hafa staðizt þetta próf í fimm tilteknum grein-
um, og vilja afla sér réttinda til inntökuprófs í háskóla,
halda síðan áfram námi til loka „grammar school.“
11 ára prófið sætir mjög mikilli gagnrýni bæði meðal
kennara og foreldra, eftir því sem mér var tjáð. Að sjálf-
sögðu átti ég tal við ýmsa kennara, sem töldu það nauð-
synlegt og í raun og veru eina möguleikann til að flokka
börn eftir til framhaldsnáms.
Andstæðingar þessa próffyrirkomulags sögðu hins veg-
ar, að allt of snemmt væri að ákveða um 11 ára aldur fram-
tíð barnanna svo sem með þessu prófi væri gert. Hneigðir
barna væru ekki nægilega komnar í ljós á þeim aldri, og
hæfniprófin væru ekki nógu áreiðanleg til þess að byggja
á þeim svo afdrifaríka flokkun. Börn, sem einu sinni hefðu
verið dæmd í „secondary modern“, væru varanlega úti-
lokuð frá hærri skólastigum, hvað sem hæfileikum þeirra
liði, m. a. vegna þess, hve þau drægjust aftur úr jafnöldr-
um sínum á „grammar school“ í bóknámi.
En mörgum foreldrum og kennurum finnst unglingar
ekki hafa neitt sérstakt til brunns að bera eftir setu í
„secondary modern“, þar eð sá skólaflokkur veitir ekki
nein tiltekin réttindi með prófi. Skildist mér nokkur gremja
vera ríkjandi út af þessu og allmikil efagirni gagnvart
áreiðanleik prófanna, sem flokkað er eftir.
Ekki fá foreldrar að sjá niðurstöður 11 ára prófanna,
hvorki hæfniprófanna né hinna. Hins vegar fær fram-
haldsskóli sá, sem barnið fer í, skýrslu um prófniður-
stöðurnar.
En þegar þessum prófum er lokið, og komið er fram á
vor, fá skólastjórar barnaskólanna mjög vandasamt verk
að vinna. Þeir verða að hafa ýtarleg einkaviðtöl við for-