Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 86
72
MENNTAMÁL
stjórn fræðslumálanna á það, hvort ekki sé tiltækilegt, auk þess sem
launakjör stéttarinnar séu bætt til muna frá því sem nú er, að veita
nemendum Kennaraskólans námsstyrki og hagstæð lán, enda séu þeir,
sem styrksins verða aðnjótandi, skuldbundnir til þess að starfa um
tiltekið árabil úti á landi.
Jafnframt telur fundurinn að athuga beri, hvort ekki sé réttlæt-
anlegt og ástæða til, að kennarar utan fyrrgreinds svæðis búi við
hagstæðari launakjör.
3.
a. Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða telur, að alltof lengi hafi
dregizt að reisa viðundandi húsnæði fyrir kennaraskólann og treystir
því, að byggingu þeirri, sem nú er hafin, verði hraðað sem mest. Jafn-
framt telur fundurinn nauðsynlegt að reisa heimavist við skólann og
bendir á, að skólinn er mest sóttur af fólki utan Reykjavíkur.
b. Þá telur fundurinn sjálfsagt, að Kennaraskólinn fái rétt til
að útskrifa stúdenta, því að sá réttur mundi auka aðsókn að skólan-
um, sem nú er alltof lítil miðað við kennaraþörfina.
Frá nðaljundi Kennarasambands Austurlands.
Dagana 26. og 27. sept. 1959 var aðalfundur Kennarasambands
Austurlands haldinn í barnaskólanum að Egilsstöðum.
Form. sambandsins, Kristján Ingólfsson, setti fundinn og skipaði
Valgeir Sigurðsson og Þórð Bcnediktsson forseta þingsins, en Guð-
mund Magnússon og Guðmund Þórðarson ritara þess.
Gestir þingsins voru: Þorsteinn Sigurðsson, kennari Reykjavík.
Kristinn Björnsson, sálfræðingur, Reykjavík. Jóhannes Óli Sæmunds-
son, námsstjóri, Akureyri.
Þorsteinn Sigurðsson kynnti ný kennslutæki í átthagafræði og
lestri og leiðbcindi um notkun þeirra. Gazt fundarmönnum vel að
þessum tækjum Þorsteins. Nokkrir skólar hér eystra liafa þegar keypt
slík tæki.
Kristinn Björnsson hóf umræður um geðvernd og sálfræðiþjónustu
í skólum og skýrði frá tillögum, sem Félag íslenzkra sálfræðinga hef-
ur gert um stofnun, sem veitti skólunum aðstoð í þessum efnum. Marg-
ir tóku til máls og góður rómur var gerður að erindi hans. Að lok-
um svaraði frummælandi fyrirspurnum fundarmanna.
Jóhannes Óli Sæmundsson flutti framsöguerindi um reiknings-
kennslu. Lagði námsstjórinn áherzlu á hlutlægari kennsluaðferðir
og aukna kennslu í hugareikningi. Hann minntist á nýjustu, erlendar
kennslubækur í reikningi og brýna þörf nýrra kennslubóka hér.