Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 91
menntamál
77
FRÁ FRÆÐSLUMÁLASKRIFSTOFUNNI.
Yfirlit um barnafræðsluna á íslandi
1958-1959.
Fjöldi skóla og kennara:
Fastir heimangönguskólar voru 111, heimavistarskólar
46 og farskólar 77, alls 284. Þar með eru talin uppeldis-
heimili, sem ríkið styrkir að einhverju leyti, svo og 6 einka-
skólar.
Settir og skipaðir kennarar við skóla þessa voru 777,
þar af 258 konur, en stundakennarar um 160. Farkennar-
ar eru 73. Þeir hafa aldrei orðið svo fáir. 22 fastir kenn-
arar eru við einkaskóla.
5 kennarar voru veikir allt árið og tóku laun skv. lögum
nr. 38/1954, um réttindi og skyldur embættismanna, en
ríkið greiddi staðgenglum þeirra. Orlof fengu 6 barna-
kennarar. Starfandi barnakennarar voru því þetta ár 766.
12 þeirra voru settir eða skipaðir að hálfu leyti við gagn-
fræðastigsskóla.
Ldtnir kennarar:
Þessir starfandi kennarar létust á skólaárinu:
1. Anna Sigurjónsdóttir, skólastjóri við barnaskólann að
Ríp í Skagafirði, f. 10. ág. 1926, d. 28 okt. 1958.
2. Arngrímur Kristjánsson, skstj. Melaskólans í Reykja-
vík, f. 28. sept. 1900, d. 5. febr. 1959.
3. Björn Eiríksson frá Kotá, kennari í Óspakseyrarskóla-
hverfi, Strand., f. 27. marz 1893, d. 14. apríl 1959.