Menntamál - 01.04.1960, Blaðsíða 99
MENNTAMÁL
85
Efnisyfirlit í hverri bók finnst mér ætti að vera sjálfsögð nærgætni og
kurteisi við lesendur. Slíku þyrfti námsbókagerðin að gefa gaum í
framtíðinni.
Helgi Trygguason.
BIBLÍUSÖGUR FYRIR FRAMHALDSSKÓLA eftir Astráð
Sigursteindórsson.
Biblíusögur fyrir framhaldsskóla komu út á s.l. ári, 3. útgáfa með
breytingum. Bók þessa hefur Ástráður Sigursteindórsson tekið sam-
an. Er hún 143 bls. í allt að því Eimreiðar broti. Um gamla testa-
mentið er fjallað út á bls. 63, hitt er um nýja testamentið. Að miklu
leyti er orðalag Biblíunnar látið lialdast. Nokkrar stuttar greinar eru
um sögu Gyðinga á síðustu öldum f. Kr.
Að mörgu leyti er svipað snið á þessum l)iblíusögum og barnanáms-
bókinni í sömu grein. Segja má, að aldrei sé góð vísa of oft kveðin,
en þó hlýtur það að vera nokkur annmarki bæði nemendum og kenn-
urum að þurfa að endurtaka barnaskólanámið á svo svipaðan hátt í
framhaldsskólanum. Troðnar barnaskólagötur eru ekki að skapi ung-
linga, ef aðrar leiðir eru færar eða sjáanlegar, og ættum við að taka
meira tillit til þeirrar staðreyndar en við gerum, og það í ýmsum
námsgreinum, sem ekki verða ræddar í þessum fáu orðum um biblíu-
sögurnar. En viðkomandi þeirri námsgrein tel ég, að leita þyrfti ráða
til að ferska upp námið í framhaldsskólunum, og komi margt til
greina til að glæða hugsun og áhuga, svo sem samanburður á sög-
um og að finna samræmi í kenningum og frásögnum, og það hvernig
mörg dæmi byggja upp reglur. Einnig eru uppskriftir, útdrættir og
skriflegar ályktanir. Vinnubókastarf mundi koma sér vel á jiessu
sviði. Ekki má gleyma fornleifarannsóknum síðustu ára og lifandi
myndskreyttum frásögnum af fornum ])jóðum. Þetta eru aðeins nokkr-
ar ábendingar. Nýbreytni á þessu sviði myndi kosta mikla vinnu og
ýmsar tilraunir og krefjast samstarfsvilja margra manna. En vel mætti
byrja í smærra lagi, t. d. með nokkrum lesörkum, halda síðan áfrarn
með stuðningi reynslunnar.
Ofannefndar biblíusögur eru á góðum pappír, og prýða ýmsar
ágætar myndir. Þakkar höf. framkvæmdastjóra ríkisútgáfunnar, Jóni
Emil Guðjónssyni viðkomandi því atriði og útgáfu bókarinnar yfir-
leitt. Geta má þess og hér, að liann hefur sýnt lofsverðan dugnað og
áhuga á að auðga kristnifræðikennslu okkar með ágætum smámynd-
um, hentugum fyrir vinnubókarstarf.
Helgi Tryggvason.