Menntamál - 01.04.1965, Page 16
10
MENNTAMAL
sem þeir hafa valið. Mismunurinn á þyngd námseínisins í
lægri verknámsskólanum og hinum þremur er þó svo mik-
ill, að nemandi úr hinum fyrst nefnda, sem hneigður væri
til bóknáms, þyrfti að setjast aftur í fyrsta bekk í einhverj-
um hinna þriggja síðarnefndu og tapaði því einu ári.
Síðustu 2 ár skyldunámsins geta nemendur valið um mis-
munandi námsskrár, sem hafa þó hliðstætt gildi innan
hvers sk(')la. í menntaskólanum og báðum gerðum gagn-
fræðaskólanna eru þessar mismunandi námsskrár undir-
búningur að sérhæfingu í námi og starfi.
Markmiðið er að sameina allar þessar framhaldsskóla-
línnr undir einu og sama skólaþaki, svo að nemendurnir
geti eftir „brúar“ árið valið nm allar greinar framhalds-
námsins í sömu stofnuninni (Comprehensive school).
í stuttu máli má segja, að með hinu nýja kerfi séu börn-
um með mismunandi upplag og hæfileika tryggðir góðir
menntunarmöguleikar í stað þess, áð hið fyrra tók of ein-
hliða tillit til greindu nemendanna.
í Hollandi hefur 5 daga skólavika víða verið upp tekin
og á auknum vinsældum að fagna.
Á þinginu flutti Ulrich Kledzik frá V.-Þýzkalándi ýtar-
lega skýrslu um svör aðildarfélaganna og gerði grein fyrir
viðhorfum í einstökum löndum. Að loknum umræðum dró
hann saman helztu atriðin í stuttu rnáli:
Við lifum á breytingatímum. Síðustu áratugina hafa fram-
larir í vísindum, iðnaði, verzlun og félagsmálnm breytt lé-
lagslegum og efnahagslegum aðstæðum í nálega öllum lönd-
um. Óhjákvæmilegt er, að þessar breytingar hali áhrif á
uppfræðsluna. Þjóðirnar eru byrjaðar að skilja, að hinir
venjubundnu kennsluhættir eru ekki lengur við hæli nú-
tíma J)jóðfélags, sem hefur tekið svo miklum breytingum,
og þær ræða nú, hvernig skólakerfum Jreirra verði breytt til
að uppfylla kröfur tímans.
Af skýrslum aðildarfélaga I.F.T.A. verður ráðið, að und-