Menntamál - 01.08.1967, Page 24
118
MENNTAMAL
ekki raktar hér. Þess má þó geta, að frægur enskur stærð-
fræðingur, John Wallis, kenndi í Englandi og skrifaði ítar-
lega hljóðfræði, og í Hollandi kenndi svissneski læknirinn
Conrad Amman og skrifaði merka bók, sem hann kallaði
Surdus toquens, en það þýðir hinn talandi daufdumbi.
Tímamót í sögu þessarar kennslu verða ekki fyrr en 1770,
þegar fyrsti skóli fyrir mállausa var stofnaður í Frakklandi.
Stofnandi hans var franskur munkur að nafni Le Epée.
Hann var ríkur maður og gaf skólanum allar eigur sínar.
Hann bjó til sérstakt bendinga- og merkjakerfi, og fór öll
kennsla í skólanum fram á því. Einu eða tveimur árum
seinna var skóli af sama tagi stofnaður í Leipzig. Stofn-
andi hans var Samuel Heinice, en hann var einn af læri-
sveinum Pestalozzis. Kennsluaðferð hans var allt önnur en
Le Epée. Hann lagði mesta áherzlu á að kenna mállausum
að tala. Kennsluaðferð hans hefur stundum verið kölluð die
Mutter Metode eða móðuraðferðin, því hann taldi, að
kennslan ætti að vera sem líkust því, þegar móðir talar við
iítið barn sitt, og er sú kenning lians í fullu gildi enn í dag.
Upp úr aldamótunum 1800 fór danskur læknir, Castberg
að nafni, að gefa þessunr málum gaum og vildi fara að kynna
sér jrær kennsluaðferðir, sem notaðar voru til að kenna mál-
lausum. Heimildum lrer ekki saman um, hversvegna hann
fór ekki til Leipzig, telja sumar heimildir, að Heinice hafi
haldið kennsluaðferð sinni leyndri, og benda á, að það eina,
sem um hana sé vitað, sé af bréfum, sem honum og Le Epée
hafi farið á milli, en aðrir telja, að Castberg hafi átt þess
kost að fara til náms í Leipzig, en vegna þess að kennslunni
þar hafi þá verið allmjög aftur farið, enda Samuel Heinice
þá látinn, hafi Castberg heldur kosið að stunda nám við
Le Epée-skólann. En hvað sem rétt er í því, þá er víst, að
Castberg lærði kennsluaðferð Le Epée og kenndi hana svo
í Danmörku eftir heimkomuna, og var hún svo tekin upp
við alla skóla á Norðurlöndum, þegar þeir tóku til starfa.
Castberg beitti sér ötullega fyrir málstað hinna mállausu,