Menntamál - 01.08.1967, Side 89
MENNTAMÁL
183
hefði á þinginu og hvatti félagana til að vinna ötullega að
því að efla þjóðernisvitund og ást til lands og þjóðar.
Ólafiir S. Ólafsson, fornr. L.S.F.K., ræddi um þingstörfin.
Taldi hann, að vel hefði tekizt um val málefna á þingið og
afgreiðslu þeirra. Flutti hann þakkir til fundarmanna og
starfsmanna og sleit síðan þinginu.
Forsetar þingsins voru:
Þórarinn Þórarinsson skólastjóri frá Eiðum, Þorgeir Ib-
sen skólastjóri, Hafnarfirði, og Ingi Kristinsson skólastjóri,
Reykjavík.
Ritarar þingsins voru:
Jón Árnason yfirkennari, Reykjavík, Ásmundur Krist-
jánsson kennari, Reykjavík, Friðbjörn Benónísson kennari,
Reykjavík.
Fastur ritari ráðinn Ragnar Kristjánsson kennari, Rvík.
Að þingi loknu voru heimsóttir tveir skólar í Hafnarfirði.
Fyrst var komið í Lækjarskólann. Þar flutti ávarp Árni
Grétar Finnsson formaður fræðsluráðs. Skólinn var skoðað-
ur undir leiðsögn skólastjóra og yfirkennara. Síðan var kom-
ið í Öldutúnsskólann. Þar var drukkið síðdegiskaffi í boði
fræðsluráðs Hafnarfjarðar. Gengið var um húsnæði skólans
og skoðuð fjölbreytt og vönduð sýning á vinnu nemenda
hans. Kennarar skólans veittu leiðsögn.
Tillögur og ályktanir þingsins fara hér á eftir.
Ályktanir 14. uppeldismdlapmgs Sambands islenzkra barna-
kennara og Landssambands framhaldsskólakennara haldið
i Melaskólanum dagana 3.-4. júní 1967.
I
Fjórtánda uppeldismálaþing S.I.B. og L.S.F.K. skorar á
stjórnir samtakanna að beita sér fyrir eftirfarandi við yfir-
stjórn menntamála: