Vorið - 01.12.1959, Blaðsíða 29
V O R I Ð
14?
GETURÐU FUNDIÐ LEIÐINA?
Björn hefur lagt a£ stað til að heim-
sækja þrjá vini sína. Til þess að vita,
hve langan tírna þarf til að heimsækja
þá alla, skalt þú byrja við stað þann, sem
merktur er með örinni og heimsækja fyrst
þann, sem býr í nr. 1. Farðu svo þaðan
til nr. 2, og síðast til nr. 3. Taktu tímann
og vittu hvort þú getur heimsótt þá alla
á einni mínútu. E£ þú notar blýant, skaltu
hafa línurnar mjög daufar, svo hægt sé að
strjúka þær burt.
★ ★
★ ★
VONDI ÚLFURINN
Úlfurinn sá fugl. Hann ætlar að
borða hann. Fuglinn var uppi í tré.
Hann söng bFbí. Úlfurinn sagði:
Ég ætla að éta þig. Svo át úlfurinn
liann.
Stefdn Hermenns, 7 ára,
Ölduslóð 10,
Hafnarfirði.
o
o o
o o o
o o o o
Raðaðu þessum peningum í pýra-
mída, sem snýr öfugt við þann sem
myndin sýnir. Þú mátt aðeins færa
til þrjá peninga.
ÚTSÖLUMENN
Um næstkomandi áramót verður
Vorið 25 ára. Þess verður minnzt i
fyrsta hefti næsta árgangs. Af því
tilefni vill Vorið biðja alla útsölu-
menn, sem það geta, að senda mynd
af sér sem fyrst upp úr áramótum,
eða fyrr.