Vorið - 01.12.1966, Blaðsíða 42
RAJA: Já, þeir eru á skónum!
MAHARAJA: Betlarar á skónum inni í
höllinni! I viðurvist hans hátignar!
RAJ KUMMAR (grátandi): Ég vil íá
björninn! Ég vil fá björninn!
ÞJÓNNINN: Yðar hátig'n .... (Þjónn-
inn er örvinglaður. Hermennirnir
híða skipunar og horfa lil skiptis á
Raj Kummar og förudrengina).
DAVÍÐ (við Gopala): Ég held þeir séu
allir vitlausir.
GOPALA: Við hefðum átt að taka skóna
af okkur.
DAVÍÐ: Það er of seint. Við hefðum
aldrei átt að koma hér inn.
ÞJÓNNINN: Yðar hágöfgi ....
RAJ KUMMAR (lítur upp og hendir á
förudrengina og skipar): Takið þá
fasta!
(Hermennirnir koma fram til Davíðs
og Gopala. Þá rís Bimsa á afturfæt-
urna, slær fremsta hermanninn, svo
að hann fellur í gólfið, slær áfram til
hægri og vinstri, ef hermennirnir ætla
að nálgast. Raj Kummar flýr til hirð-
fólksins. Bimsa eltir hann. Það verður
uppþot).
ALLIR (hrópa hver sem betur getur):
Hjálp! Björninn ætlar að drepa okk-
ur! Hjálp! Flýið burt!
(Allir hlaupa út, varðmenn og her-
menn meðal hirðfólksins. Björninn
urrar. Davíð og Gopala standa á
miðju gólfi.)
DAVÍD: Nú höfum við færi! Út gegn-
um bakdyrnar! Komdu Bimsa!
(Davíð tekur í Bimsa. Svo hlaupa þeir
út).
TJALDIÐ.
E. Sig. þýddi.
184 VORIÐ
„Mammo, Konráð hefur glcypt krónu, og
ég áíti 50 aura af henni!#/
„Auðvifað er ég með farseðlana. — Þeir
eru í buxnavösum mínum."