Vorið - 01.03.1970, Blaðsíða 46
Skautamot íslands 1970
Skautaíþróttin hefur verið hálfgert
olníbogabarn hjá íslendingum og stend-
ur á svipuðu stigi og skíðaíþróttin var
fyrir 30—40 árum. Er nú kominn tími
til að fram fari nokkur vakning á þessu
sviði, því að ísland er land svella og
fanna og vel fallið bæði lil skauta- og
skíðaiðkana. Nýtt vélfryst svell í höfuð-
horginni lofar góðu í þessu efni fyrir
Reykjavík, en fram að þessu liefur
skautaíþróttin verið mest iðkuð á Ak-
ureyri.
í sambandi við Vetrarhátíð Í.S.Í. á
Akureyri í vetur, fór Skautamót fslands
þar fram. íshockykeppni var liáð milli
liða frá Akureyri og Reykjavík á Krók-
eyri. Þetta er mjög skemmtileg íþrótt.
Keppnin var spennandi og kom þar
fram, þó að lið Akureyringa sigraði, að
Reykvíkingar eru í mikilli framför í
þessari íþróttagrein. En Akureyringar
hafa lengst af stundað þessa íþrótt.
Þá fór fram keppni í þremur öðrum
greinum og fór sú keppni fram á Brunn-
árflæðum. í 1500 m skautablaupi karla
sigraði Orn Indriðason, Akureyri, en
Gunnar Snorrason og Örn IndriSos-
næstur honum var Gunnar Snorrason
úr Reykjavík. í 500 og 5000 m skauta-
hlaupi karla sigruðu þessir sömu menn»
Örn varð fyrstur og Gunnar annai'. 1
1500 metra skautálilaupi unglinga 15—'
17 ára varð fyrstur Sigurður Baldurs-
son, Akureyri, annar Vilhjálmur HaH"
grímsson, Akureyri, og þriðji Hermann
Björnsson, Akureyri. Flestir beztn
íshockylið
vikinga ó Ve*r
ariþróttahótíð'
inni.
42 VORIÐ