Alþýðublaðið - 17.03.1923, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.03.1923, Blaðsíða 1
ig23) Laugardaginn 17. maiz. Frá bæjarstjórnarfundí 15. snarz. Leikfélag Reykjavikur. 62. tölublað. Húsnæðismálið. í fundarbyrjun spurðist Héð- inn Valdimarsson fyrir um, hvers vegna húsnæðismálið hefði elcki verið tekið á dagskrá, þar sem tveggja funda bil hafði liðið frá því, er valið var milli frumvarpa meiri og minni hluta húsnæðis- nefndar. En er borgarstjóri svar- aði ekki fyrlrspurninni, ítrekaði Olafur Friðriksson hana Upp- lauk þá borgarstjóri sínum munni og kvað orsökina þá, að ekki væru komnar fram breytingar- tillögur, er bæjarfulltrúar hefðu boðað við íyrri umræðu málsins. Sandnám. Fasteignanefnd lagði til, að bönnuð yrði fyst um sinn sand- taka á Eiðsgrauda, með þVí að hann hefði eyðct mjög í briminu mikla 13.— 14. janúár og síðan. Greindi bæjarfulltrúa nokkuð á um það, hvort sandnámið hefði áhrif á eyðingu hans eða ekki. Sýndi Ólafur Friðriksson fram á, að eyðing grandans stafaði af því, að landið væri að lækka, og gerði sandnámið hvorki til né frá, en borgarstjóri hugði, að eyðingin stafaði af því, að sjóvinn skolaði sandi innan úr grandan- um og þá því fremur, ef tekið væri burt það, er fram bærist til sjávar jafnóðum. Þrátt fyrir það, þótt fram kæmi, að mjög baga- legt væri að missa af sandnám- inu þarna, meðan ekki væri séð fyrir jafnhentugu sandnámi ann- ars staðar, var samþykt að banna það með eins atkvæðis meiri hluta. Móti voru Alþýðuflokks- fulltrúarnir og Þórður Sveinsson. Veggjalús. í sambandi við fundargerð fasteignanefndar vakti Héðinn Valdimarss. máls á bráðri nauðsyn Jþess að úlrým^veggjalús, sem Víkingarnir á Hálogalandi, sjónleikur í 4 þáttum eftir Henrik Ibsen, verða Ieiknir sunnudaginn 18. þ. m. og mánu- daginn 19. kl. 8 sfðd. — Aðgöngumiðar til sunnudagsins verða seldir á laugárd. kl. 4—7 og á sunnud. frá kl. to—12 og eftir kl. 2. — Aðgöngumiðar til mánudagsins verða seldir á mánudaginn kl. 10—1 og eftir kl. 2. borLt hc-fir í tvö hús Suðurpól- anna svo kölluðu og er orðin þar að hreinni plágu fyrir íbú- ana. Lagði Héðinn tii, að borg- arstjóra væri falið að framkvæma útrýminguna þegar í stað. Borg- arstjóri taldi öll vandkvæði á, að unt væri að gera það fyrr en í vor, því að fólk gæti ekki legið í tjöldum að vetrarlagi, og færð ist undan að vinna verkið. Vildi hann láta fela Héðni framkvæmd- ina, og kvaðst Héðinn sky'du taka hana að sér, ef hann fengi umráð yfir íé til þess, og dregið væri af kaupi borgarstjóra fyrir, að hatm neitaði fyrir fram að vinna þau verk, er bæjarstjórn fæli honum. Benti Héðinn og borgarstjóra á, að bærinn hefði ekkert við slíka menn að gera og væri eins gott að taka af honum alt starfið. Það kom fram í umræðunum, að vel mætti leigja samkomuhús handa fólkinu að liggja í, meðan útrýming lúsar- innar færi fram, og myndi hún ekki taka nema um tvo sólar- hringa. Að síðustu var tillaga Héðins samþykt með 8 atkvæð- um gega 3. Móti voru borgar- stjóri, Jónátan og Pétur Hall- dórsson, en með Alþýðuflokks- fulltrúarnir tjórir, seni viðstaddir voru, læknarnir, Þórður Bjarná- son og forseti (Sig. Jónss.). (Frh.) Nýkoinnar vörnr: Með Lagarfossi fengum við all- mikið af neðantöidum vörum og seijum bæði í heildsiilu og smásolu meðan birgðir endast: Strausykur Molasyknr Kandís Húsíunr Sveskjur Libhy’s mjúlk Kai'toflur „“VVarp White" ágsat teg. Luukur Haframjol Hveiti (hvíta rósiti) Gerhveiti Sagú Ertur Eggjapúlver í*vottasápur Alt íyrsta flokks vörur. Virðingarfylst. Kaupfélagið. Stúdeutafræðslan. Um skógrækt á Islandi talar Koefod Hanseu skógræktarstjóri á morgun ki. 2 í Nýja Bíó. Miðar á 50 au. við inng. kl. x30s

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.