Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1909, Qupperneq 1

Bjarmi - 01.05.1909, Qupperneq 1
BJARMI KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ III. árg.1 Ileykjavík, L maí 1909. 9.-10. »Sá scm kennir, kemii eins og guðs orð!« 1. Pét. 4, 11. Góðir kennímenn. Allii- vilja hafa góða kennimenn sem annars vilja nokkra presta hafa. Þegar prestskosningar fara í hönd, þá spyr hver annan, hvað honmn sýnist um kosti umsækjendanna. Og hvaða kostir eru það þá, sem venjulega bera fyrst á góma? »Gerir hann góðar ræður? Er hann skemtilegur fyrir altarinu?« munu jafnan vera fyrstu spurningarnar, en þó er ræðulistin metin meira afflest- um. Gerir liann góðar ræður?« Hvað kallar almenningur góðar ræður? Er ekki ómaksins vert að gá að því. Það er kölluð góð i'œða að efni til, ef presturinn gerir sér mikið far um að útmála dygðir og lesti. Þegar hann talar um dygðirnar, þá eru nú allir í sjöunda himni og þykjast þar tinna bein af sínum beinum. Prédik- unin um lestina lætur líka vel í eyr- um dygðugra manna; hún nær ekki til þeirra, Hann lalar máske um á- girndarseggi, en þeir eiga ekki heima í söfnuðinum hans, heldur í öðrum söfnuðum, nema- ef vera kynni.einn og einn á stangli og »þeir eiga þá fyrir því«, segja menn. Til þess að þessi ræða geti heitið góð, þarf líka helzl að skreyta liana með íburðarmiklu orðfæri og skáldlegum líkingum og beia hana fram sköru- lega. Það heyrir til í ræðustýl, að láta hverju atriðisorði fylgja heilan lióp af lýsingarorðum. Það sakar ekld, þó að þau séu tlest eða öll sömu merkingar og allra sízt í líkræðum. Blessað móðurmálið okkar á svo mik- ið af þess konar orðum. En álierzl- an á hverju slíku orði á að fara vax- andi og vera mesl á liinu siðasta. Samlíkingarnar eru vel þegnar, en þó mega þær hvorki vera of hvers- dagslegar né of nærgöngular. Einu prestsefninu við prestaskól- ann hér, varð það einu sinni á i próf- ræðu að líkja trúarlífi almennings við »Saltvíkurtýru«, Þelta þótli hneyksl- anlega ótíguleg og hversdagsleg sam- líking. Beztar þykja samlikingarnar, ef þær koma hvergi nærri lilheyrendunum, t*að hneykslar l. d. ekki þó að prest- ur útmáli blóm og sólaryl sumarsins í svartasta skammdeginu eða kulda ogklaka vetrarins um miðsumarsleytið. Það er eins og almenningi geðjisl bezt að öllu því, sem fjarst er, en finnist alt verst, sem næst er. Verið getur, að þetta eigi að nokkru rót sína að rekja til eymdarára þjóð- arinnar, því að þá varð henni svo tamt að líta til baka, lil liðinnar gull- aldar og þreyttist aldrei á að heyra sagt frá henni. Mörgum hættir við að lifa enn í þeim draumum. En mestu mun þó valda um þetta framanskrifaður prédikunarháttur. — Hanu er arfur l'rá skynsemistrúaröld- inni á öndverðri 19. öld og er hann aftur að glæðasl meðal vor.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.