Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.10.1909, Page 1

Bjarmi - 15.10.1909, Page 1
BJARMI -es KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = III. árgj Ileykjjavík, 15. okt. 1909. »/i7i ég tek ekki vitnisburðlijá mönnumn. Jóh. 5, 35. 21. tbl. 3ira Friðrik Friðriksson er fæddur að Halsi í Svarfaðardal 25. maí 1868, sonur Friðriks Péturs- sonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Pálsdóttur. í lærðaskólann kom hann 1886, en útskrifaðist 1893 og fór það ár til Hafnarháskóla og nam þar mál- fræði. 1 Höfn kyntist hann starf- semi »Kristilegs félags ungra manna« (K. F. U. M.) og gerðist starfsmað- ur þess; hætti hann þá málfræðis- námi og las guðfræði við presta- skólann hér og útskrifaðist þaðan 1900, og vigðist til prests á sama ári. Síðan hefir hann helgað K. F. U. M. alt starí sitt. Fyrstu félagsdeild- ina hér á landi stofnaði hann 2. jan. 1899 með 45 lermingardrengj- um og hefur sá félagsskapur dafnað vel og borið góðan árangur. Nú á félagið stórt og veglegt hús við Amlmannsstíg hér í ]jæ, vígt á skir- dag 1907. Félagsmenn eru nú um 300 í þremur deildum eftir aldri, í yngstu deild 11—14 ára, miðdeild 14—17 ára og i aðaldeild yfir 17 ára. Um 200 ungar stúlkur hafa lika stofnað félagsskap með sér (K. F. U. K.) og vinna bæði félögin saman að nokkru leyti, og er sira Friðrik líka stofnandi þess félags- skapar og íramkvæmdai'stjóri beggja félaganna. Tilgangur félaganna er, að »efla trúarlegt og siðferðislegt líf meðal Friörik preslur Friðriksson. ungra manna og hlynna að andleg- um og líkamlegum þroska þeirra«. Síra Friðrik er mikill starfsmað- ur, en þreytist lítið, því að hann er svo glaður yfir starfi sínu. Nú er hann settur til að þjóna 2. dómkyrkjuprestsembætlinu hér í Reykjavik til næsta vors í sjúkdóms- forföllum síra Haraldar Níelssonar. Vér óskum síra Friðrik blessunar drottins af hlýjum huga og undir þá ósk taka margir æskumenn og foreldrar þeirra hér í Reykjavík og víðar.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.