Bjarmi - 15.02.1927, Síða 1
BJARMI
—== KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XXI. arg. Reykjavfk, 15. febrúar 1927. 7. tbl.
fyrirverð mig ekki fyrir Krists fagnaðarerindi". — Páll.
Ársskýrsla kristniboðans
1926.
Kristnið — Skírið— Kennið!
Krislur.
Guði þóknaðist að opinbera
son sinn í mjer, til pess að
jeg boðaði hann meðal heið-
ingjanna.
Páll postuli.
Á öllum ölduni, síðan kristni hófst,
heíir Páll postuli verið hin inikla
fyrirmynd trúboðanna. — Kenning
og framkvæmdir er í lífi flestra manna
silthvað. En óvenjulega hefir Páll
postuli verið að því Ieyti sjálfum
sjer samkvæmur. Kennimanninum
Páli hefir enn þá enginn staðið á
sporði, og engu síður er hann óvið-
jafnanlegur þegar til framkvæmd-
anna kemur. Guðlegs innblásturs
gætir hjá honum í starfinu engu síð-
nr en í kenningunni, i verki engu
siður en í orði.
Svo var Páll postuli Guði hlýðinn
að undirgefni hans var takmarkalaus.
»Jeg met lífið einkisvirði fyrir sjálf-
an mig«, sagði hann, »ef jeg bara
má enda þjónusluua, er jeg tók við
af Drotnk. Og leiðsögn Audans fylgir
hann æfiulega mótmælalaust. Er þess
víða getið: Heilagur Audi varnaði
þeim að tala orðið í Asíu«. sReir
gerðu tilraun til að fara tii Bityniu,
en Andi Jesú leyfði þeim það ekki«.
»Að tillaðan Audans ásetti Páll sjer
að ferðast um Makedóniu —«. »Bund-
inn i anda er jeg á leið til Jerúsal-
em, vitandi eigi hvað þar muni mæta
mjer, nema hvað beilagur Andi birt-
ir mjer í hverri borg, og segir að
fjötrar og þrengingar bíði min«. —
Margra alda reynsla ótal kristni-
boða bendir ótvírælt í þá átt, að
best muni ávalt fara á, að taka sjer
til fyrirmyndar hinn mikla brautriðj-
anda og frömuð kristniboðs meðal
heiðingjanna. Má enda með sanni
segja, að kristniboðarnir hafa veriö
eftirbreytendur Páls postula eins og
hann var Krists. Eru vinnubrögð hans
engu að síður en boðskapurinn af
Guði þannig mótuð.
Með tvennu móti gætir kristni-
boðinn skyldna sinna, gagnvart Guði
og söfnuðinum, hvers erindreki hann
er. Hann boðar heiðingjunum fagn-
aðarerindið og gætir jafnframt safn-
aðanna nýmynduðu. Hann boðar fyrst
og fremst Krist meðal heiðingjanna
og gætir því næst safnaðanna, sem
honum hetir tekist að stofna.
Sá er tilgangur allrar kristniboðs-
starfssemf, að söfnuðir myndist. En
safnaðamj'ndun í heiðnu landi er
meiri erfiðleikutn bundin en menn
heima geti hugsað sjer það. Pó er
framtið kristniboðsins á hverjum stað
undir því komin hvernig það tekst.
í safnaðarstarfinu meðal heiðingj-
anna eru rit Páls postula, eins og
gefur að skilja, ómetanlega dýrmætur
leiðarvísir. Honum var full ljóst hve
mikið er undir því komið, að söfn-
uðirnir verði andlega og efnalega