Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.1927, Side 1

Bjarmi - 01.05.1927, Side 1
BJARMI KRISTILEGT H'E IMILISBLAÐ = XXI. árg. Reykjavík, 1. maí 1927. 13.—14. thl. „Hann er friðþæging fyrir syndir vorar og ekki einungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir syndir alls heimsins“. — (I. Jóh. 2. 2). Frelsarinn - og syndarinn. Ræða fíutt að Reynivöllum, sunnudagiun í föstuinngang 1927, af sra Hctlldórí Jónssyni sóknarpresti þar. Giiðspjcillið: Lúk. 18. 31—34. Jesús er að segja lærisveinum sín- um fyrir kvöl sína og krossdauða. Hann er að gera þeim kunnar þær hörmungar, sein honum mundi mæta, og vissulega til þess, að þeir gætu betur verið við því búnir, að taka þeim hryllilegu atburðum, er þá bæri að, en ella. Guðspjallið segir oss jafnframt, að þeir hafi ekki skilið þessi orð hans og finst oss það ekki óeðlilegt, því sú meðferð, er Jesús sagði þeim, að | hann mundi verða fyrir, var síst þann veg, að hann ætti hana skilið. í*að var aðalástæðan lil þess, að þeir ekki skildu orð hans, að þeir vissu, sem var, að í stað kvala og pyntinga átti hann af öllum skylda elsku og aðdáun. Lærisveinarnir skildu ekki þessa atburði fyr en þeir voru aug- liti til auglitis við veruleikann sjálfan. En þessi orð sem önnur urðu þeim umhugsunarefni eigi lítið. Og um það ber vitni meðal annars, að þau hafa varðveist alt til þessa dags. Með áminstum orðum er Jesús að benda lærisveinum sínum á aðalstarf sitt til syndalausnar sjerhverjum iðr- andi syndara, er ekki varð af hendi leyst, án þess að ganga gegnum þær hörmungar, er hann var að lýsa fyrir þeim. Þetta skildu lærisveinarnir síð- ar mæta vel, og því var hinn kross- festi og upprisni frelsari, aðalinn- tak boðskapar þeirra er þeir fóru að skila sínum postullegu erindum í hans nafni. Og postulinn Páll, er var gagntek- inn af endurlausnarstarfi Jesú Iírists, fann, að þessi aðalskylda lá á honum, aö boða Jesúm Ivrist og hann kross- festan og þessa skyldu leysti hann af hendi, eigi með nauðung, heldur af frjálsum vilja, með þeirri meðvitund, að hann sjálfur hefði verið til náðar tekinn fyrir þessa sömu náð. Og það er þessi starfsemi Jesú, sem vissulega á að boða bæði í tíma og I ótíma, endurlausnarstarfsemi hans og þess vegna ómakleg kvöl hans og krossdauði. Þann sannleika þarf að boða meðal syndugra manna sí og æ, að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess, að hver, sem á hann trúir, ekki skyldi glatast, heldur hafa eilíft líf. Og um glötun í neinum skilningi getur ekki verið að ræða nema í syndum og afleiðingum synda. í guðspjallinu segir, að lærisvein- arnir hafi ekki skilið Jesú orð. Þeir eru nú ekki einir um það skilnings- leysi, því enginn skilur þá fórn, sem Jesú flutti til frelsunar syndugum manni. Enginn skilur, hvers vegna hann varð aö taka vorar misgerðir á

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.