Bjarmi - 15.05.1927, Page 1
BJARMI
—■===== IvRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XXI. árg.
Reytjavík, 15. raaí 1927.
15. tbl.
jesús mælti: „Ef þjer þektuð mig, þá þektuð þjer og föður minn“. — Jóh. 8., 19.
Hvað virðist yður um Krist?
Hyers son er hann?
(Framh.).
Til skilningsauka má skifta þess-
um mótbárum i 3 aðalflokka, þótt
dálítið grípi þeir hver í annan, »Trú-
arheimspekin« eða rjettara sagt skyn-
semisstefnan flytur þær, sem fyrst
verða taldar, þá kemur gagnrýni
textans með sínar mótbárur og loks
eru sögulegu mótbárurnar í 3. flokki.
»Trúarheimspekin« segir: æskufrá-
sögurnar í Matt. og Lúk. eru þjóð-
sögur — »barnaleg þjóðtrú« segir
Benjamín Kristjánsson i »Straumum«
4. tbl., — blær þeirra er »]jóðelskur
og rökkursögukendur« segir kennari
hans, M. J. dósent, í Inngangsfræði
sinni (bls. 133).
Sumir skoðanabræður þeirra segja,
að af því að þær segi frá svo mörgu
yfirnáttúrlegu þá hljóti þœr þess vegna
að vera tilbúningur. Um það atriði,
möguleika kraftaverka, er ekki til
neins að deila. Hvorirtveggju, játendur
og neitendur, styðjast við sína trú og
finst hinir sjeu haldnir hleypidóm-
um, svo að þeir vilji ekki sjá raun-
veruleikann. Játendur, sem áður hafa
efast, geta þó fremur sett sig i spor
neitenda, vorkent þeim og fyrirgefið
stóryrði þeirra í garð kraftaverkatrúar.
En þegar »trúarheimspekin« fer að
benda á líkindin til að slíkar yfir-
nátturlegar sögur hafi myndast, má
ræða um það. En þar er hver rödd-
in á móti annari hjá nýguðfræðing-
um sjálfum. Har. Níelsson segir í jóla-
ræðu í bók sinni, Árin og eilífðin, bls.
288 : »Hin eiginlega hugmynd um yfir-
náttúrlegan getnað, sem lengi hefir
ríkt í kirkjunni, er komin úr grísku
goðasögnunum og er því í raun og
veru grísk heiðni«. — Nefna má rjett
sem sýnishorn 2 enn frægari þýska
nýguðfræðinga, Gressmann og Gunkel,
segir sá fyrri, að sú hugmynd sje kom-
in í kristnina úr babilónskum þjóð-
sögum1), sá síðari andmælir því harð-
lega og segir hún sje frá Egyptalandi2).
Harnack prófessor, frægastur þeirra
allra, neitar því alveg að hún sje af
heiðinni rót, sögur heiðingja um goð-
borna kappa, sjeu svo gersamlega
ólíkar hreinleika boðunarsögunnar.
I Hann heldur að spádómurinn um
Immanúel í Jesajas 7. kap. hafi verið
aðalorsök þess að sagan myndaðist.
Langflestir lœrðir nýguðfræðingar
samtímans andmæla þvi aftur, og
benda meðal annars á, að hvergi
verði þess vart að fræðimenn Gyð-
inga hafi skilið þenna spádóm svo.
í*að er Matteus, sein fj'rstur veröur
til að heimfæra hann til þess við-
burðar, af þvf að hann vissi um
viðburðinn.
Sra Gunnar hefir ekki stuðst við
bestu heimildir, er hann segir, að
»frásagnirnar um getnað af heilögum
1) Das Weihnachts — Ewangelium.
2) Zum religionsgeschictlichen Verstiiud-
nis des N. Testam.