Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.06.1927, Síða 1

Bjarmi - 15.06.1927, Síða 1
BJARMI XXI. árg. Reykjavík, 15. júní 1927 17.—18. tbl. „Hlutdeild þín í trúnni verði mikilvirk til handa Kristi í þekking alls hins góða, sem með oss bvr“. Filemon 7). t iroi JóhanflSsoQ bankamaður sextugur. Pað eru svo fáir leikmenn, sem að kristindómsmálum starfa á landi voru, að þessir fáu vekja umtal og eftirtekt. Áhugalaust fólk »er hissa á þeim«, andstæðingar kristindóms eru þeim gramir, og trúaðir menn unna þeim. Munu fáir hafa reynt meira af því öllu en Árni Jóhannsson. Tólf trúmálarit hefir hann ýmist þýtt eða frumsamið og margoft flutt erindi um trúmál. Allir kannast við að ytri frágangur þeirra var góður, en efnið hefir stundum vakið gremju þeirra, sem aðrar leiðir vildu fara, því að Árni hefir talað skýrt og ákveðið gegn allri afneitun. Á afmælisdaginn hans, 13. þ. m., flutti »Vísir« mjög hlýleg ummæli eftir Bjarna Jónsson, meðhjálpara við dómkirkjuna, um sjálfan hann og seinustu bókina, sem Á. Jóh. þýddi, söguna: »Hvar eru hinir níu? — Og sama dag ílutti »Alþýðubl.« eftir- farandi grein eftir síra Bjarna Jóns- son dómkirkjuprest. Hún hljóðar svo: »Árm' Jóhannsson bankamaður er sextugur í dag. Menn kannast við bankamanninn, sem með þekkingu og dugnaði rækir starf sitt. Þó eru þeir enn fleiri, sem kannast við trú- manninn og rithöfundinn; þeir þekkja hann, þó að margir þeirra hafi ekki sjeð hann, og það er víst, að fjölda- margir hugsa í dag með hlýjum huga til Árna Jóhannssonar og eru hon- um þakklátir fyrir það, er hann hefir ritað til andlegrar uppbyggingar. Árni játar trú sína með einurð og djörfung, og það vita allir, sem til þekkja, að trúin er honum heilagt alvörumál, og frá því segja hin mörgu rit, sem hann hefir gefið út. Á hann þakkir skilið fyrir rit sín, sem hafa veitt mikinn stuðning sönnu, heilögu málefni. Margir eru þeir, sem gleðj- ast yfir því starfi, því að þeir eru vissir um, að það ber ávöxt. Þeir hinir sömu árna honum sextugum allra heilla og óska honum gæfu og gengis«. Jód Helgason prentari fimmtugur. í dag verður Jón Helgason fimm- tugur. Því miður vissi jeg þetta svo seint, að jeg gat ekki látið grein þessa koma út á afmæiisdegi hans. Jeg efast þó ekki um, að margir Reyk- vikingar veröi til að gleðja hann. Annað væri minkun. Jón prentari Helgason er einn af þeim mönnum þjóðar vorrar, er vill

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.