Bjarmi - 01.08.1927, Blaðsíða 1
BJARMI
= IÍRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XXI. árg.
Reybjavík, 1.—15. ágúst 1927
21.—22. tbl.
„Vertu óhrædd, María, því að þú hefir fundið náð hjá Guði“. (Lúk. 1, 30).
Á Boðunardag Maríu 1927.
Ræða flutt í Marteinstungu af síra Óf. V.
prófasti í Fellsmúla.
Lát kraft þinn Jesú, Jesú minn,
mig jafnan yfirskyggja.
Og lát þitt orð og anda þinn
mjer æ í hjarta byggja,
svo jeg sje þinn og þú sjert minn
og þinn æ minn sje vilji
og okkur ekkert skilji.
Amen.
Lúk. 1., 26-38.
Enn einu sinni höfum vjer nú
heyrt það efni og mól, sem upphaf-
lega hefir hlotið að vera háheilagt
launungarmál fyrstu hlutaðeigenda:
Maríu og Jósefs, og allra nánustu og
kærustu vina þeirra, svo sem Elísa-
belar frændkonu hennar, Sakariasar
presls, rnanns Elísabetar, og ef til vill
nokkurra fleiri, sem trúað var fyrir
svo óheyrðum og ótrúlegum atburði,
sem getnaði barns af Heilögum anda.
Þetta alt var þess eðlis, að það mátti
til að vera öllum aðilum hinn mesti
leyndardómur, einkum þó Maríu og
Jósef, og munu allir það finna og
skilja. — Svo kemur fæðingarsagan
með öllum þeim dýrðar- og dásemda
viðburðum, sem sagt er frá á öllum
jólum, alstaðar um allan kristinn
heim; þar næst vitnisburður Símeons
og önnu um Jesúbarnið í musterinu;
þá alt sem birtist og bar við í sam-
bandi við vitringana frá Austurlönd-
um. Og loks vitnisburður Jóhannesar
skírara um viðburðina, sem urðu við
skírn Jesú.
Alt þetta hefir orðið til þess að
rifja upp, viðhalda og breiða út og
styrkja vitnisburðinn um getnaðinn
af Heilögum anda; því að alt var
þetta svo einstætt og undursamlegt,
að það benti ekki á annað fremur
en alveg einstæðan uppruna, og al-
veg sjerstakt eðli og ætlunarverk hans,
sem alt þetta kom fram um og við.
Þannig hefir nú þetla smámsaman
kvisast og vitnast, og rjettlætst af
viðbuiðunum, og alt af með mink-
andi hættu og hnjóði fyrir Maríu,
eftir því sem leið.
Þegar svo hin undursamlega lífs-
saga þessa undra-sonar, Jesú Krists,
var öll, og alt hið undursamlega og
einstæða, sem hún segir frá, hafði
gerst fyrir allra sjónum, þá varð það
og alt til þess enn meir að efla og
staðfesta frásögnina og trúna um ein-
getnaðinn meðal fleiri og fleiri, alt
þangað til að Lúkas læknir tekur sig
til og fer að leita og rannsaka og bók-
festa alt það sannasta, sem unt var
að fá í þessum efnum, eins og hann
seglr sjálfur í upphafi guðspjalls síns.
En Lúkas er nú alls ekki einn um
þelta. Matteus tollheimtumaður talar
einnig berum orðum um getnað Jesú
af Heilögum anda, og allir guðspjalla-
mennirnir herma auk þess fjölda orða
og atvika um og eftir Jesú, sem ým-
ist beint eða óbeint lýsa einstæðum
guðlegum uppruna hans og eiginleg-
leikum. Frá upphafi sinna vega hefir