Bjarmi - 01.09.1927, Blaðsíða 1
BJARMI
KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XXI. árg.
Reykjavík, 1. sept. 1927
23.-24. tbl.
„Þjer munuð fagna með óumræðilegri gleðí, þegar þjer náið takmarkinu
fyrir trú yðar, frelsun sálna yðar". (I. Pjetur 1. 9.).
Geir Sæmundsson
vigslubiskup
andaðist 9. ág. s. I. eftir 2 vikna legu
í hjartasjúkdómi; er þar hniginn
góður maður og vinsæll. Hann var
fyrir löngu góðkumiur uin land alt
fyrir ágæta söngrödd, og þótti skara
fram i'ir öllmn öðrum prestum við
altarið. Sóknarbörn hans, sem um
hann hafa ritað látinn í Akureyrar-
böðin, tala mjög hlýlega um prests-
störf hans. Brynleifur Tobíasson seg-
ir meðal annars i Degi 11. "ág. s. 1.:
„Sr. Geir var jafnan góður gestur, en
einkum var hann kærkominn, þegar
sorgin var í húsinu. Hann gat íiest-
um hetur glaðst með giöðum og
hrygst með hryggum, og með ljúf-
mensku sinni og kærleika huggaði
hann marga hrelda og þerraði mörg
tár af augum þeirra".
Sá, sem þetta ritar, minnist góðra
stunda úti í fögrum garði við hús
sra Geirs á Akureyri, fegursta garð-
inum við íslenskt prestheimili; þegar
frá er skilinn hinn unaðsfagri ,.Skrúð-
ur", er sra Sigtryggur Guðlaugsson á
á Núpi hefir gróðursett á margfalt
óhentugri stað en er í skjólunum á
Akureyri. — Mjer er nær að halda
að sr Geir hafi hvergi kunnað hetur
við sig en í garði sinum; mjer virt-
ist honum Ijúfara að tala þar um það
sem dýpst hýr í hjartanu en annars-
staðar, og þau samtql vöktu hjá mjer
þau hlýindi, er ekki hurfu, enda þótt
mjer gremdist hvað hann taldi úr í
fyrra sumar að gjörðar væru nokkr-
ar tilraunir til að koma á almennum
sóknarnefndafundum á Akureyri.
Það mun rjett, sem getið var um í
einhverju blaði, að hann hafi verið
orðinn þreyttur síðustu árin. En
mjög var honum þó hugleikið að
endurreisa prestafjelagið norðan-
lands, enda siðustu störf hans að
stjórna prestafundinum norðlenska,
sem sagt er'frá hjer í hlaðinu, og í
hinsta sinn fór í hann í kirkju til að
veita prestunum altarissakramenti.
Hann hjet fullu nafni Geir Stefán,
f. 1. sept. 1867. Foreldrar hans voru:
Sæmundur prófastur Jónsson i
Hraungerði og kona hans, Stefanía
Siggeirsdóttir prests á Skeggjastöð-
um. Hann varð stúdent 1887, tók em-
bættispróf við háskólann í K.höfn
1894, var veittur Hjaltastaður 1897,
fjekk Akureyrarprestakall 8. júní
Í900i varð prófastur í árslok 1905,
og skipaður vígslubiskup í Hóla-
biskupsdæmi hinu forna haustið
1909, samkvæmt kosningu presta.
Var vígður biskupsvígslu í Hóla-
kirkju 10. júlí 1910 af Þórhalli
biskup, en þar hafði Geir Vídalín
einn tekið Jjiskupsvígslu áður, er Sig-
urður Stefánsson Hólabiskup veitti
biskupsvígslu 30. júlí 1797. Geir
vígslubiskup kvæntist 1896 Sigríði
Jónsdóttur háyfirdómara. Eignuðust
þau 3 börn, og lifa tvö þeirra, Jón
og Heba, bæði úppkdmin. Frú Sig-
ríður andaðist 23. okt. 1923 eftir
langvinn veikindi.