Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.02.1928, Side 1

Bjarmi - 15.02.1928, Side 1
BJARMI == KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = XXII. árg. Reykjavík, 15. febr. 1928 6. tbl. „jeg ásetti mjer að vita ekkert meðal yðar nema Jesúm Krist og hann krossfestan“. I. Kor. 2, 2. Dr. Taldimar Briem vígslubiskup áttræður. Hinn 1. febrúar s. 1. átti Dr. theol. Valdimar Briem vígslubiskup á Stóra- núpi áttræðis-afmæli. Um leið og Bjarmi samfagnar honum og þakkar honum alla vinsemd á liðnum árum, hefir hann þá ánægju að geta flutt eftirfarandi fregnir: I’eir prestar úr Árnesprófastsdæmi er því gátu viðkomið, og nokkrir sveitung- ar hans og sóknar- börn, sóltu hann heim þenna dag. Guðsþjónusta var haldin í kirkjunni, og prjedikaði þar prófasturinn, síra Ól- afur Magnússon i Arnarbæli, og hafði að texta : Jóh. 21, 15—17. Talaði hann um störf og skyldur presta yfirleitt, og Iciddi út frá því tal sitt að kirkjulegri og kristilegri starfsemi hins ágæta öldungs, hvernig hann hefði verið eitt af hinum björtu Ijósum innan kirkju lands síns, er bæri birlu út til safnaðanna í nútið og framtíð. — Sungnir voru eingöngu sálmar eftir vígslubiskupinn. Að lokinni guðsþjónustu dvöldu allir viðstaddir heima á Stóranúpi langa hríð. Höfðu afmæisbarninu borist nokkur heillaóskaskeyti, þar á meðal frá biskupiíslandssvohljóðandi: » Vígslubiskup Dr. Valdimar Briem, Stóranúpi1 Hugheilar ham- ingju- og blessunar- óskir á áttræðis- afmæli þínu. íslensk kristni og kirkja fær aldrei fullþakkað þjer það, sem þú gafst henni í sálmum þín- um og trúarljóðum, en mun varðveita nafn þitt um aldur í blessun og heiðri, sem eins sinna bestu sona. Góður Guð blessi þjer allar ólifaðar æfistundir og geri þjer þær indælar og ánægjuríkar. Hans friður og náð í Drotni vorum Jesú Kristi sje með þjer. í kærleika og þakklæti Jón Helgasona. Dr. tbeol. Valdiraar Briem vígslubiskup. Þá færðu prestar prófastsdæmisins

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.