Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.03.1928, Síða 4

Bjarmi - 07.03.1928, Síða 4
68 B J A R M I Ágæt bók fyrir presta. Svíar hafa átt marga góða kenni- menn, sannkallaða skörunga i kenni- mannastjett, þótt fæstir þeirra hafi kunnir orðið hjer á landi. Á fyrri hluta 19. aldar áttu þeir þrjá prje- dikara, sem taldir voru meðal hinna langfremstu á Norðurlöndum á sin- um tima. það voru þeir Magnus Lehnberg (biskup i Linkaupangi, f 1808), Karl Georg Rogberg (pró- fessor í Uppsölum f 1834) og sálina- skáldið Johan Olof Wallin (erki- biskup í Uppsölum f 1839). Eink- um fór hið mesta orð af hinum sið- astnefnda um öll Norðurlönd, og mun hann hafa haft mikil áhrif á prjedikanaflutning kennimanna á Norðurlöndum um og eftir miðbik 19. aldar. Einnig hingað út bárust prjedikanir Wallins og voru um hríð langútbreiddastar allra útlendra prje- dikana á fslenskum prestssetrum, og hafa vafalítið einnig haft mikil áhrif á prjedikanir kennimanna vorra. En siðustu mannsaldrana hefir lítið orðið vart sænskra prjedikana úli hjer. Á einstöku stað hefi jeg þó rek- ið mig á hinar ágæfu prjedikanir J. A. Eklunds og Nat. Beskows. En Sviar eiga enn í dag ýmsa á- gæta kennimenn, og meðal þeirra er vafalaust í fremstu röð kennimaður sá, er jeg vildi vekja lítilsháttar at- hygli á, prestum vorum til fróðleiks, og þá líka virðist vera sá allra sænskra kennimanna, sem langmest orð fer af um þessar mundir. Þessi kennimaður er dr. Sam. Stadener, er á næstliðnu hausti varð biskup í Strángnás-stifti, en var áður prestur á Skáni og jafnframt kennari við háskólann í Lundi i kennimannlegri guðfræði. Dr. Stadener hefir gefið út tvö prjedikunarsöfn hvort á eftir öðru næstliðin ár. Hið fyrra er yfir gömlu textaraðirnar, (»Evangelie-Postilla« í 4 bindum); hið síðara yfir nýjar texta- raðir. Nefnist síðari postillan, sem hjer skal vakin athygli á »Högmásso- Postilla. (Första nya högmássotext- erna)«. Er hún í 4 bindum, rúmar 900 blaðsiður alls, og kostar hvert bindi óinnbundið 3,75 kr. (sænskar). Verðið er að vísu nokkuð hátt; eins og gengið er í bili yrði verð postill- unnar um 20 kr. íslenskar. En jeg teldi því fje vel varið jafn ágæta bók og hjer er um að ræða. Það leynir sjer ekki, að þar er prjedikari á ferð- um, sem er höfði hærri en flestir kennimenn vorra tíma á Norður- Iöndum. Prjedikanirnar eru í alla staði tímabærar og taka tillit til þeirra vandamála á sviði hins trúarlega og andlega lifs, sem vorir tímar eiga við að glíma. Bygging þeirra er ein- hver hin vandaðasta, sem jeg hefi sjeð langa lengi í prjedikunum. Öll efnisskifting er svo ljós, sem frekast verður á kosið. Hverri prjedikun er skift í sjerstaka kafla (venjulega þrjá) og hefst hver prjedikun á stuttum inngangi (exordíum) út af ákveðinni ritningargrein (oftast úr gamla testa- mentinu), er leiðir að ákveðnu um- talsefni, sem svo er strengilega fylgt prjedikunina á enda. Uintalsefnin eru flest þannig orðuð, að þau festa sig í huga áheyrendanna. Pví miður leyfir rúmið mjer ekki að tilfæra hjer dæmi þess, hvernig umtalsefnin eru orðuð hjá Stadener. Útfærslan siálf er blátt áfram meistaraleg. Pað er rjett ótrúlegt hve mikið höf. getur fengið út úr texta sfnum og hversu honum getur unnist efni úr bibliu- orðum, sem fæstum mundi detta í hug að feldist í þeim. En þar við bætist svo alveg óvenjuleg mælska

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.